- Project Runeberg -  Á ferð og flugi : Kvæðabálkur /
8

(1900) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - II. Bœjarbragurinn

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

Og slangrandi farþegar klemdust í kös
                að komast út þar sem var skemst;
Þvi jafnvel til matborðsins allmörgum er
                það ánægja’ að rífa sig fremst.

Með félaga einum ég vék mér þann veg,
                sem var okkur greiðfærast að. —
Að berast með fjöldanum aldrei mér er
                svo ant um, ef ræð ég við það!
Hann fælist ei þrengslin, en firrist það alt,
                sem finst honum óljóst og húmt,
En ljós-þrengslum geðfeldra’ myrkrið er mér,
                ef myrkrið er einungis rúmt.

Hver húsaröð þéttist, líkt standbergi steypt,
                en strætið sem hamragil breitt.
Úr opnaðri jörðunni upp spruttu menn
                með andlitin moldug og sveitt.
„Alt samlandar þínir“, kvað sveitungi minn;
                „jafn-sauðþægir, löghlýðnir menn
Að vinna’ okkar námur, er vænlegast fólk,
                sem við höfum náð hingað enn.“
„Ég trúi því naumast. Þeir ólust“ kvað eg
                „þó upp yfir jörð þessir menn!
Þeir þola’ ekki að kviksetjast, klóra sig upp
                úr kreppunni’ og skurðunum senn.“


<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 01:44:57 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/aferdflugi/0010.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free