Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Það er næði í urðar arm’,
Ekki af mæði að segja —
Dragðu kvæða-bók úr barm’.
Björg og hæðir þegja.
Út í sæ til sólarlags
Syngdu daginn hraða.
Veldu braginn bezta strax,
Byrjaðu lagið glaða.
Bóm þinn liðugt, frí og frjáls,
Feldu við — inn mikla —
Þar sem kliðir kveðins máls
Kitla, iða, sprikla.
Hamra-fergjan hljómar létt,
Hljótt er hvergi á jörðu,
Stilla dvergar stein og klett:
Streng í bergi hörðu.
Þegar hagi og hraunið bratt
Hjálp við slaginn ljá þér,
Bómnum næ eg gjalla glatt,
Gríp í lagið hjá þér.
II.
Eg hef’ ornað upp um sinn
Okkar horfnu daga,
Sumarmorgna sungna inn,
Sönginn fornra braga.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>