Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
Ein spiritus-laumverzlun, lyfsala nefnd,
og lánsbúðir tvær eða þrjár,
En kirkjurnar fjórar — að fjöldanum til
eins frjóvar og veitingakrár.
Um grundirnar nýbýlin stóðu svo stök
sem strandsker við glælygnu-sæ;
Og mannvirkin öll vóru líka svo lík
og lagið á sérhverjum bæ,
Öll nýplægða moldin jafn blakkleit á blæ
og blágrænka akranna söm.
Hver mannsandi hlaut víst að hugsa þar eins,
hver hönd vera álíka töm.
Því siðir og hugsanir dagsins í dag
þar drottna með óskoruð völd,
Sem frumbygðin sprettur upp fortíðarlaus
og fóstruð af samtíðar öld.
Og framförin mikla og menningin hér
við minningar ei hefir töf,
Ef endistu að plægja, þú akurland fær;
er uppgefst þú: nafnlausa gröf.
— En Saga og Ævintýr öll hefir skreytt
með örnefnum bændanna lönd,
Og bæina óskírða uppvaxa lét
ei öldin um dal eða strönd
Á föðurleifð minni. Í myrknættið út,
er minningar tendra sín bál,
Um vallgróna haugana blossana ber,
svo bjart er um feðranna sál.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>