- Project Runeberg -  Andvökur. Eftir Stephan G. Stephansson / III. 1895-1909 /
22

(1909-1923) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

Og Ragnheiður litla í kynnisför kom.
                Var kvisað hún settist nú að.
Og stúlkurnar pukruðu og pískruðu margt
                en piltarnir hældust um það.
Jafn enskmentuð stúlka varð fyrirmynd fljótt,
                svo fjörug og hýrleg á brún.
Á tveim vikum gerðist hver gjafvaxta mey
                í ganginum alt eins og hún.
Í dönsum og leikum alt sveitarfólk sveif,
                og sögur og ljóð vóru þuld —
Og presturinn gerði sér gangskör um það:
                að Guðshúsið enn væri í skuld!
Og svo var til almennrar samkomu efnt,
                að safna í þann féleysis-hyl;
Og þar gengu kvenfélags-konurnar fremst,
                því kökurnar lögðu þær til.
Og Ragnheiðar fegurð var fésæl það kvöld.
                Það fanst á, menn skildu það bert,
Að piltarnir vegna þess buðu altént bezt
                í brauðið, sem hún hafði gert!
Til kyrkjunnar safnaðist silfur og bréf
                og »centin« og »dollara« fjöld.
Og skaparinn ánægður hefir víst horft
                á húsið sitt skuldlaust það kvöld.

En vorönn kom rétt eins og rothögg á alt.
                Um Ragnheiði lítið var skeytt,
Og dönsum og sáluhjálp sýndist þá helzt
                í sáning og uppskeru breytt.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 02:15:19 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/andvokur/3/0026.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free