Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
En alt hafði landið samt útliti breytt
í asanum, daginn sem leið.
Þann morgun lá sólskinið sofandi í fönn
og svartklædd var Árskógarbreið.
Og lognið og blíðan sér blandaði í loft
og blámaði sléttu og fjöll; —
Það var eins og risi frá rólegum draum
úr rekkjunni veröldin öll.
En þegar að hallaði hádegi af,
varð hásuðrið eldskininn sjór.
Og andheita fjallrænan kvæðið sitt kvað,
svo klöknaði stálharður snjór.
En fjöll drógu upp vindskýin, hæluð um hlíð
og hnjúkana toppstöguð við,
Og suðvestanhlákan á öræfi upp
sást opna sin gullslegnu hlið. —
Það kvöld, áður dagurinn settist í sæ,
var sólbráðið</i> starfinu hætt,
En andvaka stormurinn ólmaðist samt,
svo úti var nauðlega stætt;
Um koldimma hánótt hann hefir ei séð
að hjarnið og svellið var frá —
Um miðnætti síðast hann syfjaður varð
og sofnaði uppgefinn þá.
Og svo kom þá birtingin blækyr og svöl
og blakti um dalverpið lágt,
Sem starði þar örist á upprunninn dag
með andlitið náttkuldablátt. —
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>