Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
— En hún hafði aftur um útlitið breytt,
varð ákafa-fasmeiri þó,
Er móðirin snúðug og hvatlega kom
og krakkann sinn af henni dró.
Hún leit upp, ég hrökk við; þar litu mig á
in ljósskæru barnsaugun kyr.
Þó umbreytt hún væri, ég þekti’ hana þá,
því þau voru söm eins og fyr
Svo leit ég á hausti — (í hnappinn á rós,
sem héluðum klípur með góm) —
Að heiðbláar sóleyjar lifa oft lengst,
þó litverpt sé hvert annað blóm.
Og tillitið blágljáu augnanna eitt
svo órækt úr huga mér var,
Að ég gat ei raunarlaust rengt mig um það:
hún Ragnhildur litla sat þar.
Ég stóð úti’ á pallinum vagntengslin við,
mig viðraði í dragsúgnum einn,
Því inni var kvöldloftið kæfandi þungt
og hver sat og þagði eins og steinn.
Í geiminn og náttmyrkrið eimvagninn út
flaug óskýra, hlykkjótta braut,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>