Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
En þangað sem krakkanum kastaði’ hún út,
einn kvennmaður grátandi rann,
Og vandlætissvipurinn allur var af,
er óskaddað barnið sitt fann.
Vor næturferð gekk, eins og vanalegt var,
eins vel og um hábjartan dag,
Þó skuggamynd lands drægi svartnættið svo,
að sæist ei hóll eða drag.
— En það var í birting að brotnaði hjól
og bilaði eimreiðin vor
Sem svaraði mílu frá svolitlum bæ;
þar sat hún og komst ekki spor.
Í bæinn var hlaupið og hraðskeyti sent
um hjálp — sá var kosturinn einn —
Og boð um, að við værum friðsemdar-fólk,
sem fýsti ekki að stangast við neinn,
Svo þeir skyldu hinkra á veginum við,
sem vildu ekki reka sig á;
Og farstjórinn rólegur roggaði og beið,
því »reglurnar« uppfylti’ hann þá.
En fólkið sat dottandi, staðþreytt og stilt,
því stundin var svefndrungaleg;
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>