Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
En samt var oss fólkið svo fegið og gott
í fátæka smábænum þar.
Það góðhjartað, fult eins og fólk gerist bezt,
og forvitið álíka var.
En margur úr hóp okkar, hvað sem til kom,
þar hvildi um nóttina sig.
Um nafnkendu gestina get ég samt helzt:
in góðfrægu prestshjón — og mig.
Því þau höfðu sloppið hjá slysinu vel
óslösuð, en orðið þó bilt,
Og frakkinn hans hrukkast og henni var enn
fyr’ hjartanu dálítið ilt,
Og benti á háskann, sem hlytist af því
ef hún ekki hvíldi sig þar.
Og presturinn, hann hafði töskunni týnt,
í troðningnum eitthvað hún valt.
En eg — eg var þreyttur, og svo vildi eg sjá
ið sorglega framhaldið alt.
Og það var um kvöldið að klerkur og eg
— er kyrð varð í gestanna sal —
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>