Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
K ö 1 s k i:
Ljóðum á þá lund að dá þá lengst sem smá þá.
K o 1 b e i n n:
Skulum fá þá eigin ásjá,
Út úr lágþrá, kvíða og váspá.
K ö 1 s k i:
Gerum lit að list, en vitið ekki.
K o 1 b e i n n:
Látum hita hugsana
Hrína á gliti orðanna.
K ö 1 s k i:
Engu dugum, dægur-fluga verum.
K o 1 b e i n n:
Fullum huga lifum lífs!
Ljós úr smugum berum.
K ö 1 s k i:
Hefjumst upp á afskekt set í eilífðinni.
K o 1 b e i n n:
Stefjum fet í framförinni.
K ö 1 s k i:
Við fyrsta stefið stóðstu á önd! Þú stuðlar öll hin
Eins og steyptur steinn í völlinn.
K o 1 b e i n n:
Styrkist eg við háttaföllin.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>