Völundarkviða
Frá Völundi
Níðaður hét konungur í Svíþjóð. Hann átti tvo sonu og eina
dóttur. Hún hét Böðvildur. Bræður vóru þrír, synir Finnakonungs. Hét
einn Slagfiður, annar Egill, þriðji Völundur. Þeir skriðu og veiddu
dýr. Þeir kómu í Úlfdali og gerðu sér það hús. Þar er vatn er heitir
Úlfsjár. Snemma um morgun fundu þeir á vatnsströndu konur þrjár, og
spunnu lín. Þar vóru hjá þeim álftarhamir þeirra. Það vóru
valkyrjur. Þar vóru tvær dætur Hlöðvés konungs, Hlaðguður svanhvít og
Hervör alvitur, in þriðja var Ölrún Kjársdóttir af Vallandi. Þeir
höfðu þær heim til skála með sér. Fékk Egill Ölrúnar en Slagfiður
Svanhvítrar, en Völundur Alvitrar. Þau bjuggu sjö vetur. Þá flugu þær
að vitja víga og kómu eigi aftur. Þá skreið Egill að leita Ölrúnar en
Slagfiður leitaði Svanhvítrar en Völundur sat í Úlfdölum. Hann var
hagastur maður svo að menn viti í fornum sögum. Níðuður konungur lét
hann höndum taka svo sem hér er um kveðið:
- 1. Meyjar flugu sunnan
- myrkvið í gögnum,
- alvitur ungar
- örlög drýgja.
- Þær á sævarströnd
- settust að hvílast,
- drósir suðrænar,
- dýrt lín spunnu.
- 2. Ein nam þeirra
- Egil að verja,
- fögur mær fira,
- faðmi ljósum.
- Önnur var Svanhvít,
- svanfjaðrar dró,
- en in þriðja
- þeirra systir
- varði hvítan
- háls Völundar.
- 3. Sátu síðan
- sjö vetur að það
- en inn átta
- allan þráðu
- en inn níunda
- nauður um skildi.
- Meyjar fýstust
- á myrkvan við,
- alvitur ungar,
- örlög drýgja.
- 4. Kom þar af veiði
- veðureygur skyti,
- Slagfiður og Egill
- sali fundu auða,
- gengu út og inn
- og um sáust.
- 5. Austur skreið Egill
- að Ölrúnu
- en suður Slagfiður
- að Svanhvítu,
- en einn Völundur
- sat í Úlfdölum.
- 6. Hann slá gull rautt
- við gim fástan,
- lukti hann alla
- lind baugum vel.
- Svo beið hann
- sinnar ljóssar
- kvonar ef honum
- koma gerði.
- 7. Það spyr Níðuður,
- Njára dróttinn,
- að einn Völundur
- sat í Úlfdölum.
- Nóttum fóru seggir,
- negldar vóru brynjur,
- skildir bliku þeirra
- við inn skarða mána.
- 8. Stigu úr sölum
- að salar gafli,
- gengu inn þaðan
- endlangan sal;
- sáu þeir á bast
- bauga dregna,
- sjö hundruð allra,
- er sá seggur átti.
- 9. Og þeir af tóku
- og þeir á létu,
- fyr einn utan,
- er þeir af létu.
- 10. Kom þar af veiði
- veðureygur skyti,
- Völundur líðandi
- um langan veg.
- Gekk brúnnar
- beru hold steikja,
- ár brann hrísi
- allþurr fura,
- viður inn vindþurri,
- fyrir Völundi.
- 11. Sat á berfjalli,
- bauga taldi,
- álfa ljóði,
- eins saknaði;
- hugði hann að hefði
- Hlöðvés dóttir,
- alvitur unga,
- væri hún aftur komin.
- 12. Sat hann svo lengi
- að hann sofnaði;
- og hann vaknaði
- viljalaus;
- vissi sér á höndum
- höfgar nauðir
- en á fótum
- fjötur um spenntan.
- Völundur kvað:
- 13. Hverjir eru jöfrar
- þeir er á lögðu
- bestibyrsíma
- og mig bundu?
- 14. Kallaði nú Níðuður
- Njára dróttinn:
- Hvar gastu, Völundur,
- vísi álfa,
- vora aura
- í Úlfdölum?
- Gull var þar eigi
- á Grana leiðu,
- fjarri hugða eg vort land
- fjöllum Rínar.
- Völundur kvað:
- 15. Man eg að vér meiri
- mæti áttum
- er vér heil hjú
- heima vórum:
- Hlaðguður og Hervör
- borin var Hlöðvé
- kunn var Ölrún
- Kjárs dóttir.
- 16. [Úti stendur kunnig
- kvon Níðaðar],
- hún inn um gekk
- endlangan sal,
- stóð á gólfi,
- stillti röddu:
- Er-a sá nú hýr
- er úr holti fer.
Níðuður konungur gaf dóttur sinni Böðvildi gullhring þann er hann
tók af bastinu að Völundar, en hann sjálfur bar sverðið er Völundur
átti. En drottning kvað:
- 17. Tenn honum teygjast
- er honum er téð sverð
- og hann Böðvildar
- baug um þekkir.
- Ámun eru augu
- ormi þeim inum frána.
- Sníðið ér hann
- sina magni
- og setjið hann síðan
- í Sævarstöð.
Svo var gert, að skornar vóru sinar í knésbótum og settur í hólm
einn er þar var fyrir landi, er hét Sævarstaður. Þar smíðaði hann
konungi alls kyns gersimar. Engi maður þorði að fara til hans nema
konungur einn.
- Völundur kvað:
- 18. Skín Níðaði
- sverð á linda,
- það er eg hvessta
- sem eg hagast kunna
- og eg herðag
- sem mér hægst þótti.
- Sá er mér fránn mækir
- æ fjarri borinn,
- Sékk-a eg þann Völundi
- til smiðju borinn
- Nú ber Böðvildur
- brúðar minnar
- bíðk-a eg þess bót
- bauga rauða.
- 19. Sat hann, né hann svaf, ávallt
- og hann sló hamri;
- vél gerði hann heldur
- hvatt Níðaði.
- Drifu ungir tveir
- á dýr sjá,
- synir Níðaðar,
- í Sævarstöð.
- 20. Kómu þeir til kistu,
- kröfðu lukla,
- opin var illúð
- er þeir í sáu.
- Fjöld var þar menja
- er þeim mögum sýndist
- að væri gull rautt
- og gersimar.
- Völundur kvað:
- 21. Komið einir tveir,
- komið annars dags;
- ykkur læt eg það gull
- um gefið verða.
- Segið-a meyjum
- né salþjóðum,
- manni öngum,
- að ið mig fyndið.
- 22. Snemma kallaði
- seggur [á] annan,
- bróðir á bróður:
- Göngum baug sjá!
- 23. Kómu til kistu,
- kröfðu lukla,
- opin var illúð
- er þeir í litu.
- 24. Sneið af höfuð
- húna þeirra
- og undir fen fjöturs
- fætur um lagði
- en þær skálar,
- er und skörum vóru,
- sveip hann utan silfri,
- seldi Níðaði.
- 25. En úr augum
- jarknasteina
- sendi hann kunnigri
- kván Níðaðar,
- en úr tönnum
- tveggja þeirra
- sló hann brjóstkringlur
- sendi Böðvildi.
- 26. Þá nam Böðvildur
- baugi að hrósa
- - - -
- - - -
- er brotið hafði:
- Þorig-a eg að segja
- nema þér einum.
- Völundur kvað:
- 27. Eg bæti svo
- brest á gulli
- að feður þínum
- fegri þykir
- og mæður þinni
- miklu betri
- og sjálfri þér
- að sama hófi.
- 28. Bar hann hana bjóri
- því að hann betur kunni
- svo að hún í sessi
- um sofnaði.
- Nú hefi eg hefnt
- harma minna
- allra nema einna
- íviðgjarna.
- 29. Vel eg, kvað Völundur,
- verða eg á fitjum
- þeim er mig Níðaðar
- námu rekkar.
- Hlæjandi Völundur
- hófst að lofti,
- grátandi Böðvildur
- gekk úr eyju,
- tregði för friðils
- og föður reiði.
- 30. Úti stendur kunnig
- kvon Níðaðar
- og hún inn um gekk
- endlangan sal.
- En hann á salgarð
- settist að hvílast.
- Vakir þú, Níðuður
- Njára dróttinn?
- Níðuður kvað:
- 31. Vaki eg ávallt
- viljalaus,
- sofna eg minnst
- síst mína sonu dauða;
- kell mig í höfuð,
- köld eru mér ráð þín,
- vilnumk eg þess nú
- að eg við Völund dæma.
- 32. Seg þú mér það, Völundur,
- vísi álfa,
- af heilum hvað varð
- húnum mínum.
- Völundur kvað:
- 33. Eiða skaltu mér áður
- alla vinna,
- að skips borði
- og að skjaldar rönd,
- að mars bægi
- og að mækis egg
- að þú kvelj-at
- kvon Völundar
- né brúði minni
- að bana verðir,
- þótt vér kvon eigim,
- þá er þér kunnið,
- eða jóð eigim
- innan hallar.
- 34. Gakk þú til smiðju
- þeirrar er þú gerðir,
- þar finnur þú belgi
- blóði stokkna;
- sneið eg af höfuð
- húna þinna
- og und fen fjöturs
- fætur um lagðag.
- 35. En þær skálar,
- er und skörum vóru,
- sveip eg utan silfri,
- senda eg Níðaði;
- en úr augum
- jarknasteina
- senda eg kunnigri
- kvon Níðaðar,
- en úr tönnum
- tveggja þeirra
- sló eg brjóstkringlur,
- senda eg Böðvildi.
- 36. Nú gengur Böðvildur
- barni aukin,
- einkadóttir
- ykkur beggja.
- Níðuður kvað:
- 37. Mæltir-a þú það mál
- er mig meir tregi
- né eg þig vilja, Völundur,
- verr um níta.
- Er-at svo maður hár
- að þig af hesti taki
- né svo öflugur
- að þig neðan skjóti
- þar er þú skollir
- við ský uppi.
- 38. Hlæjandi Völundur
- hófst að lofti
- en ókátur Níðuður
- sat þá eftir.
- Níðuður kvað:
- 39. Upp rístu, Þakkráður,
- þræll minn besti
- bið þú Böðvildi,
- meyna bráhvítu,
- ganga fagurvarin
- við föður ræða.
- 40. Er það satt, Böðvildur,
- er sögðu mér.
- Sátuð ið Völundur
- saman í hólmi?
- Böðvildur kvað:
- 41. Satt er það, Níðuður,
- er sagði þér.
- Sátum við Völundur
- saman í hólmi
- eina ögurstund,
- æva skyldi.
- Eg vætur honum
- vinna kunnag,
- eg vætur honum
- vinna máttag.
Project Runeberg, Thu Dec 20 01:29:11 2012
(aronsson)
(diff)
(history)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/eddais/on-14.html