- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
2

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

lokkana mína, þegar ég hugsa til bernsku
minnar.

Hún var glöð og djörf í tali og
fram-komu. Eg man, að einu sinni fór hún ein
á báti í land eða langt út á sundið. Það
þótti bæði djarft og strákalegt þá, hreint
ókvenlegt. En þetta var víst veðmál og
hún vildi sýna, að konan væri manns
ígildi.

Hún var sköpuð kvenréttindakona og
foringi. Hún ólst upp við frelsi og
sjálf-stæði og sterka föðurlandsást hjá móður-

systur sinni, Þorbjörgu ljósmóður
Sveins-dóttur.

Hún var víðlesin og hafði mikið ferðast
um landið. Það komu því margir gestir til
þeirra frændsystra. Olafía kom oft með
langferðagesti heim til okkar í Engey.
Það var þá fátt um skemmtanir og lítið
um vegi, en nóg af bátum. Man ég oft
eftir slíkum heimsóknum. Voru það
skemmtilegir dagar. Olafía hafði
óvana-lega mikla frásagnarhæfileika og gerði
hún samræður mjög skemmtilegar. A
yngri árum sínum tók hún mikinn þátt í
stjórnmálum og fylgdi þar Benedikt
Sveinssyni móðurbróður sínum að
mál-um. Síðari ár ævi sinnar skipti hún sér
ekki af þeim málum.

Hún hugsaði mikið um ræktun
lands-ins og áttu þau Þórhallur biskup oft tal
um þau mál. Hún var fyrst, eða ein af
þeim fyrstu, sem byrjaði að rækta tún í
mýrunum í Sunnuhvolslandi, sem nú er
verið að taka undir húsabyggingar. Pétur
Hjaltested keypti af henni og hélt þar
áfram sinni miklu túnrækt. En annað tún
áttu þær fóstrur við Skólavörðustíginn.

Olafía Jóhannsdóttir er fædd á Mosfelli
í Mosfellssveit 13. dag októbermánaðar
1863.

Þegar hún var á öðru ári, fluttu
for-eldrar hennar austur í Skaftafellssýslu.
Fór hún þá í fóstur til Ólafs sekretera
Stephensen í Viðey og síðari konu hans,
frú Sigríðar Þórðardóttur. Hún var áður
gift síra Tómasi Sæmundssyni. I bók sinni
„Frá myrkri til ljóss" lýsir hún veru
sinni í Viðey á yndislegan hátt. En eftir
þriggja ára veru þar fór hún til
móður-systur sinnar, Þorbjargar Sveinsdóttur. I
Viðey, „perlunni á Kollafirði", fékk Olafía
að sjá blessað landið sitt fyrst. Þar
dreymdi hana drauma um álfa og
huldu-fólk inni á milli stóru hólanna og mörgu
örnefnanna. Eftir að húii fór til
móður-systur sinnar fékk hún að vera nokkrar

2 hvItabandið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0004.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free