- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
3

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

vikur á sumri hjá frú Sigríði, „frúnni
sinni", eins og hún kallaði hana. í
endur-minningum sínum segist hún hafa verið
á 13. ári þegar hún hafi getað harkað af
sér að gráta, þegar hún fór í land frá
„frúnni sinni".

Olafía var rithöfundur. Fyrst og fremst
hefur hún gefið okkur ævisögu sína, sem
hún kallaði „Frá myrkri til ljóss",
yndis-lega fallega bók. Stutta frásögu um ævi
göfugrar konu, sem er óþreytandi í starfi
og gefst ekki upp fyrr en allir kraftar
eru þrotnir. Og svo hefur hún ritað „De
ulykkeligste" (Aumastar allra), nokkrar
sögur frá starfi sínu í Noregi. Sumar af
þeim sögum eru perlur, eins og sagan um
Rut. Enn fremur skrifaði hún í norsku
dagblöðin.

Eitt af mörgum áhugamálum Ólafíu
var menntun kvenna, sérstaklega
alþýðu-kvenna. Hún vildi låta heimilin vera svo
vel gerS, að þau gætu verið skólar
þjóð-arinnar. Hún vildi hafa þjóðina eins og
frú Sigrún Blöndal orðaði það: „Þjóðin
var öll einn lýðháskóli." Þannig hugsaði
Olafía sér að hún ætti að vera. Þess
vegna féll henni svo vel á Askov bæði á
skólanum og þar sem hún bjó hjá frú
Molbech. Þar hitti hún jafningja sína að
gáfum og djörfum hugsjónum og
draum-um.

Hún vann á nokkrum dönskum
heim-ilum og dönsku húsmæðurnar sýndu
henni mikla velvild. En allt þetta gerði
hún til að búa sig undir að geta kennt
íslendingum að fara með mjólk og búa
til mat. Koma á húsmæðraskóla fyrir
ungar stúlkur. Þegar hún hafði verið í
Danmörku, ætlaði hún til Englands og
vera þar á búgarði í eitt ár. Allt var
þetta til að búa sig undir kennslustarf,
svo hún gæti starfað fyrir þjóðina sína.

„Gæfa hverrar þjóðar," segir Ólafía,
„er komin undir því, að stefnt sé að
þroska hvers einstaklings og að hver

styðji annan. Á því grundvallast hið
bezta borgarafélag, sem jarðneskum
mönnum getur hlotnast."

Ólafía fór aldrei á búgarð í Englandi.
Og hún kom ekki á skóla á þeim
grund-velli, sem hún hafði hugsað. Ferð hennar
varð til Noregs og það er eins og allir
þræðir og allar ferðir í lífi hennar verði
nú bundnar við Noreg.

I marzmánuði 1894 sigldi hún inn
Víkina í skínandi björtu veðri og var frá
sér numin af undrun þegar hún sá dökku
grenitrén, sem virtust spretta upp úr
berum klöppunum. Og anganin var eins
og hressandi svaladrykkur.

Olafía eignaðist marga góða vini strax
í Noregi. Alls staðar var hún boðin
með-al göfugs og góðs fólks og landið þótti
henni fagurt. — Á „Herberget",
gistihús-inu, sem hún bjó á, kynntist hún
kristi-legri starfsemi og Hvítabandinu. Þar fékk
hún sína fyrstu Hvítabandsslaufu.

Snemma í júní fékk ’hún tilboð frá
for-stjóra lífsábyrgðarfélagsins „Star" á
Norðurlöndum að taka að sér að koma á
deildum í Færeyjum og Islandi. „Eg sem
ætla til Englands og kynna mér
mjólkur-bú!" sagði Olafía. — En hvernig sem
þetta var, þá tók hún „Star" að sér. Hún
átti að fá 300,00 kr. á ári til að ferðast
fyrir í þágu félagsins. Mér virðist að
ein-mitt þessir ferðapeningar hafi ráðið
nokkru um ákvörðun hennar. Hún fann,
að þó þetta væri ekki stór upphæð, þá
gerði hún henni mögulegt að ferðast
dá-lítið meðal fólksins. Hún fékk tækifæ’ri
til að mæta á fundum og tala við fólkið.

En þegar hún hafSi tekið þessa
ákvörð-un, varð hún svo glöS yfir því, að eiga
að fara heim eftir nokkra daga, að fólkið
á götunni horfði á hana. Og þegar hún
kom heim á „Herbergið" og frú Lorens
leit á hana, gleymdi hún að ávíta hana
fyrir að koma of seint í matinn. Svo skær
ljómaði ánægjan og gleðin af andliti

1 3 hvítabandið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0005.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free