- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
11

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

hún treysti sér að ferðast til Danmerkur.
Þar hitti hún vini sína, sem hún hafði
eignazt fyrst þegar hún fór utan.

Nú fannst henni hún eiga að fara heim,
það væri vilji Guðs. Hún lagði á hafið
og ferðin gekk miklu betur en nokkur
hafði þorað að vona.

Hún kom aftur til íslands 31. júlí 1920.

Eftir 17 ára fjarveru kom hún aftur
heim og fékk að vera hér meðal landa
sinna í fjögur ár. En þá var hún búin að
vera of lengi langdvölum í Noregi til að
geta fellt sig við kulda okkar og
af-skiptaleysi í trúmálum og ýmsar
trúar-skoðanir, sem þá voru hér mikið uppi.
Sporin hennar hér í bæ þessi ár voru til
blessunar. Veru hennar hér og
blessun-arríka starfs mun alltaf gaeta meðal vor.

Ég þakka þær stundir, sem hún kom
til okkar hjóna. Hún fékk að sjá dætur
okkar, sem allar voru þá ungar. Eg
minnist hvernig hún horfði á þær með
blíðu, kærleiksríku augunum sínum og
skildi leiki þeirra og angran. Hún strauk
lokka þeirra jafnmjúkt og mina, þegar
hún kenndi mér að lesa heima á
æsku-heimili mínu í Engey.

Veikindi þau, sem höfðu þjáð hana yfir
20 ár, tóku sig upp að nýju. Þá var
ekk-ert sjúkrahús hér á landi þar sem hún
gat notið þeirrar kyrrðar og hvíldar, sem
hún þarfnaðist. Það réðist þá af, að hún
færi til Noregs aftur. Gekk sú ferð
von-um framar.

Hún andaðist í Oslo um sumarið 21.
júní 1924 meðal sinna norsku vina og
grænu grenitrjánna, sem höfðu heillað
hana, og ilmur þeirra var henni
svala-drykkur.

Lik hennar var flutt heim til íslands.
Það kom með „Lyru". Allan daginn var
fólk að koma og spyrja: „Hvar er kistan
hennar? Hvenær á að flytja hana í land?"
Klukkan 5 e. m. var kista Olafíu hafin
frá borði. Var hafnarbakkinn þá
alskipað-ur fólki. Fánar voru alls staðar dregnir í
hálfa stöng. Þannig tóku Islendingar á
móti hennar jarðnesku leifum. Nokkrum
dögum síðar var hún jarðsungin frá
Dóm-kirkjunni i blíðskapar veðri að viðstöddu
fjölmenni. Síra Sigurbjörn A. Gislason
hélt kirkjuræðuna, en konur báru
kist-una fram í anddyri, þar tóku við
nán-ustu vinir og borgarstjórinn og hófu hana
út. En upp í garðinn var kista hennar
borin af eldri og yngri vinum hennar.
Ræðismaður Norðmanna mætti í
kirkj-unni í einkennisbúningi. Öll blóm, sem
gefin voru á kistu Olafíu, voru eftir
ákvörðun hennar gefin sjúkrahúsunum
og fangahúsinu. Við gröfina talaði síra
Árni Sigurðsson.

Lik hennar var flutt heim. Island fær
að geyma duft hennar. Hún hvilir við
hlið fóstru sinnar og ömmu í
kirkjugarð-inum i Reykjavik.

Þar hafði hún sjálf kosið sér ból.

Allar heimildir um starf Ólafíu eru teknar
úr ævisögu hennar, „Frá myrkri til ljóss".

hvítabandið 1 1

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0013.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free