- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
14

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Jóhanna Gestsdóttir

efni félagsins. Söfnuðu konur skýrslum
um fátæk heimili og gáfu bæði mat og
föt. Voru þá oftast samskot á fundum,
svo að útgjöldin lentu mest á
félagskon-um sjálfum. Ýmsar fjáröflunaraðferðir
reyndu þær þó og var undravert hvað
þeim varð vel ágengt. Árið 1905 gaf
fé-lagið t. d. mjólk fyrir 460,00 kr. og hefur
það verið mikil upphæð þá. Til
saman-burðar má geta þess, að í fundargerð frá
þeim tíma er kvartað yfir því, að hús
fengist ekki til fundathalds fyrir minna
en 2,00 kr. og þótti það dýrt.

Fötin, sem gefin voru, saumuðu
félags-konur sjálfar, ýmist heima hjá sér eða á
sauxnafundum. Hafa það oft og tíðum
verið æði mikil aukastörf fyrir
húsmæð-ur, sem þó voru önnum kafnar við sín
eigin heimilisstörf, en þar hefur sannazt,
eins og oft, að mikið má góður vilji, Árið
1918 gaf félagið t. d. 233 fatnaði fyrir
jólin. Seinna sótti félagið um styrk til
bæjarins til fatagjafa, en eigi sést hvort
það hefur komið til framkvæmda.
Þess-um fatagjöfum hefur verið ’haldið áfram

allt fram á síðustu ár, en þörf fyrir það
er miklu minni en áður var.

Trúmál hefur félagið látið sig skipta,
enda var það stofnað á kristilegum
grund-velli. Lengi hélzt sá siður, að kaupa blóm
og gefa sjúklingum í sjúkrahúsum
bæjar-: ins og låta ritningargrein fylgja með.
Einnig hafa fundir löngum verið byrjaðir
og endaðir með bænum og sálmasöng.
Kristileg smáblöð gaf félagið út um tíma,
erindi um trúmál hafa verið flutt innan
félagsins o. fl. Lengi starfaði yngri deild
Hvítabandsins að sömu málefnum og er
hennar getið hér í ritinu á öðrum stað.

Garðyrkju hafði félagið í mörg ár og
hefur þar, eftir líkum að dæma, verið
til-tölulega meira erfiðið en eftirtekjan.
Sumarheimili starfrækti félagið á
Brúar-landi árið 1925 og dvaldi þar að jafnaði
26 manns, og mun það hafa verið með
fyrstu tilraunum í þá átt, er gerðar hafa
verið hér á landi.

Fræðslustarfsemi hefur það einnig
haldið uppi og er venjulegast á hverjum
fundi einhver upplestur, annaðhvort úr
nýútkomnum bókum eða frumsamið.
Fé-lagið selur falleg minningarspjöld og
leggur andvirðið í sjóð. Það á einnig
sjúkrasjóð.

Hjúkrunarmál hafa alltaf verið
ofar-lega á stefnuskrá félagsins og má það
heita þess aðaknál á seinni tímum.

Það hefur oft kostað vökukonur til að
vaka yfir fátækum sjúklingum og
stund-um hafa konurnar gert það sjálfar. Oft
hefur félagið gefið sjúklingum rúmföt og
annað, er að gagni hefur mátt koma, og
stundum hefur þetta verið lánað.

Á Bandalagsfundi kvenna 1917 var.
fyrst rætt um stofnun hjúkrunarheimilis
hér í Reykjavik og varð það síðar sérmál’
Hvítabandsins og þess aðalmarkmið í!
mörg ár. Varð félagslífið þá fábreyttai-a
og einkum unnið að fjársöfnun, þó að
alltaf væri jafnframt starfað að líknar-

1 4 hvítabandið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0016.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free