- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
15

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

málum, eftir því sem við varð komið.
Sýndu þá margar konur í félaginu óvenju
dugnað og þrek, því að þá voru erfiðir
tímar og margir, sem trúðu ekki á
mál-efnið. Margt var lagt til málanna og ein
uppástunga kom um að byggja heimilið
inn viö Laugarnar og kalla það Baðstað
íslands, en það var áður en farið var að
nota jarðhita að nokkru ráði.

Fjár var aflað með ýmsu móti og oft
og tíðum með mjög miklu erfiði og
ósér-plægni, eins og t. d. greiðasölunni á
Þing-völlum 1930, sem lýst er hér í ritinu á
öðrum stað. Þó var það hér, eins og oft
vill verða, að aðalstörfin lentu ekki á
fjöldanum, heldur fáum konum í
félaginu.

Árið 1932 var svo byrjað að byggja,
en af ýmsum ástæðum, einkum í
sam-bandi við lántökur, þótti betra að breyta
fyrirkomulaginu og låta það vera
sjúkra-hús, sem stæði á eignarlóð. Uppkomið
kostaði húsið, með öllum ähöldum og
innbúi, rniklu meira en nam eignum
fé-lagsins, en með sérstökum dugnaði
þá-verandi formanns og með aðstoð góðra
manna tókst að koma þessu klakklaust
yfir byrjunarörðugleikana, og má í þessu
sambandi minnast Haraldar Arnasonar
stórkaupmanns, og er óhætt að segja, að
án hans ágætu aðstoðar hefði það ekki
tekizt.

Nú hefur sjúkrahúsið starfað í 11 ár
og orðið vinsælt mjög, þó að margt megi
að upphaflegu fyrirkomulagi þess finna.

Vinsældir sínar hefur sjúkrahúsiS
einkum hlotið sökum þess, að til starfa þar
hefur valizt ágætt fólk og er þá fyrst að
nefna yfirlækninn, Kristin Björnsson,
sem er hvorttveggja í senn, afbragðs
læknir og drengur hinn bezti. Þá má
einnig nefna yfirhjúkrunarkonuna, frk.
Elísabet Guðjohnsen, sem er með
af-brigðum vinsæl, og annað hjúkrunarlið,
eldhúsráðskonuna og síðast en ekki sízt

Bjarnfríður Einarsdóttir

frk. Guðlaugu Bergsdóttur, sem séð hefur
um rekstur sjúkrahússins þessi árin með
ágætum og hefur bessu fólki í
samein-ingu tekizt að gera sjúkrahúsið einna
lík-ast góðu heimili.

Rekstrarhalli hefur orðið á
starfsem-inni seinni árin og mun svo vera um flest
sjúkrahús landsins. Hefur því bærinn
orðið að hlaupa undir bagga með
félaginu og greitt hallann, enda þótt félagið
léti allt, er það aflaði, til stofnunarinnar.
Fannst því mörgum félagskonum eðlilegra
að bærinn ræki sjúkrahúsið, þar sem það
var félaginu ofurefli. Varð það úr, að
ákveðið vár áð gefa bænum sjúkrahúsið,
með öllu innbúi og áhöldum, gegn því,
að hann tæki að sér áhvílandi skuldir,
er námu ca. 140 þúsund kr. Var húsið
af-hent bænum til eignar um nýjár 1943.

Ekki er hægt að segja að mikil
viður-kenning fyrir gjöfinni hafi fram komið af
bæjarins hálfu og finnst mörgum
félagskonum hún vanmetin.

Ohætt mun þó að fullyrða, að hefði
félagið hætt sjúkrahússrekstri og selt

1 17 hvítabandið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0017.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free