- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
23

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Nokkror Hvítobandskonur frá 1907

Hana áttu konurnar í ríkum mæli. Þar
var rétt undirstaða fundin.

Hvítabandið átti á þessum árum
tals-vert af rúmfatnaði. Var hann lánaður
sjúkum og eins sængurkonum og kom
sér vel. Einnig gaf félagið mjólk eftir
því sem fjárhagurinn leyfði.

Þetta var þá starfið, þangað til
sjúkra-hússmálið komst á stefnuskrá félagsins.
Nú hefur bærinn tekið við rekstri
húss-ins. Hvitabandið gaf bænum húsið með
öllu innbúi, það er að segja, það sem
það var búið að leggja í húsið.
Sjúkra-hús þetta hefur, þó það hafi verið alltof
lítið, eins og reyndar öll sjúkrahús hér í
bæ, gert ómetanlegt gagn. Það þekkja

allir, og ekki þarf að lýsa þvi, hversu
lánlega hefur tekizt með rekstur þess
fram á þennan dag.

En nú, þegar sjúkrahúsmálinu er lokið
af félagsins hálfu, vildi ég mega óska
þess að það tæki nú upp sína fyrri
starf-semi. Það þarf kannske ekki að gefa föt
eins og stendur, nú hafa allir nóg að
klæðast í, en það eru svo mörg önnur
verkefni, sem einmitt ættu að verða
verkefni Hvítabandsins. Ég er viss um, að
hvert það starf, sem félagið tekur að sér,
verður til blessunar. Það hefur fundið
þá „réttu undirstöðu" allra sinna verka.

A afmælisfagnaðinum, þegar ég sá
þessar fáu konur, sem eftir eru lifandi af

hvítabandið 1 1

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0025.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free