Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Sníglar.
579
tegundir. Litlir gráir brekkusníglar (Limax) eru algengir
um alt land, stórir svartir sniglar (Arion ater) virðast vera
algengastir á Austurlandi, þeir geta orðið 3 þumlungar á
lengd; brekkusniglar eru ekki til á Grænlandi. I votu grasi
og lyngi lifa örsmáir landkussar (Vitrina, Hyalinia, Pupa)
og viða eru aðrir miklu stærri landkuðungar, einkum i
lyngbrekkum (Saccinea, Helix), þó þeir séu heldur ekki
stórir. I vötnum eru margar tegundir af vatnabobbum með
örþunnri skel. einkum af kyninu Limnæa; L. ovata er einna
stærst og er mjög algeng i Mývatni, þar og viðar er lika
teguud af mjög litlum, flatvöxnum vatnakuðungi af kyninu
Planorbis, helzt á slýi og vatnaplöntum þar sem velgja er.
I mörgum vötnum, t. d. i Yeiðivötnum, Mývatni,
Svartár-vatni og víðar eru örsmáar vatnaskeljar (Pisidium), af þeim
þekkjast 4 eða 5 tegundir.1) I vötnum, tjörnum og pollum
er viða á sumrum afarmikið af smáum krabbadýrum,
vatna-fióm (Daphniæ), sem eru aðalefni dýrareksins i vötnunum,
einsog vér höfum áður getið. Alls hafa fundist 2ö tegundir
skorkrabba i islenzkum vötnum, en tegundirnar eru eflaust
fleiri; krabbalif vatnanna er blendingur tegunda úr
heim-skautslöndum og tempraða beltinu.2) Allviða, einkum i
fjallavötnum. eru krabbar þeir, sem kallaðir eru skötuormar
(Lepidurus), þeir eru miklu stærri en vatnaflærnar (1 þuml.)
og hafa fengið nafnið af löguninni, þvi þeir liafa börð og
hala aftur úr einsog skata. fá eru ánumaðkar (Lumbricus)
algengir um alt land i gróðrarmoldu, stundum i miklum
grúa. Margir ormar leggjast á menn og skepnur,
band-ormar, sullaveikisormar, spólormar, njálgur o. fl., en alt þetta
Sbr. 0. Mörch: On the land and freshwater mollusca of
Ice-land. (American Journal of Concholog}^, IV. 1868. bls. 41—45). Vid.
Meddel. Naturh. Foren. 1868.
2) Charles Rabot safnaði vatnakröbbum á lslandi 1891 og fann 16
cladocera, 8 copepoda, 2 ostracoda og auk þess tvö hjóldýr og eitt
frumdýr (protozoon). J. de Guerne og .7. Ricard: Sur la faune des
eaux douces de l’Islande. (Comptes rendus hebdomadaires Ac. Sci.
Paris, t. 114, 1892. bls. 310-313).
37*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>