Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
34
t
Abúö landsins
drotnar munu enn um langan tíma hafa fylgt tyrirmælum
Jónsbókar. Af jarðabók Árna Magnússonar má sjá, að
landsdrotnar þá enn lögðu við til húsa; á 18. öld mun þó
smátt og smátt sú venja hafa komist á, að jarðeigendur
skylduðu leiguliða til þess að leggja við til húsa, halda
þeim við og ábyrgjast þau að öllu, jafnvel fyrir eldsvoða.
Landbúnaðarlaganefndin 1877 segir, að það hafi á 19. öld
jafnan verið komið undir velþóknun og veglyndi
lands-drotna, hvern hlut þeir hafi átt að endurbyggingu
jarðar-húsa, þegar óhöpp báru að höndum.1) Petta hafði i för
með sér, að húsakynni jarða urðu miklu lélegri en áður
hafði verið.2) I lögum 12. janúar 1884 um ábúð jarða
(15. gr.) segir: »skyldur er maður að halda uppi húsum
þeim öllum, er þá voru, er hann kom til jarðar og jörðu
fylgja og ábyrgjast fyrning þeirra, svo skal liann og
við-halda öðrum nytsömum mannvirkjum, sem jörðu fylgja«.
Leiguliði skal viðhalda húsum að þökum, veggjum og
við-um, nema ef bær ferst af eldsvoða eða af náttúruslysum, þá
á landsdrottinn að leggja við til húsagjörðar og smíðar, en
leiguliði veggi alla og þök. Pó skal leiguliði greiða
lands-drotni álag á hús þau, er fórust, ef þau voru eigi fullgild
eftir áliti úttektarmanna.3)
þegar leiguliði flytur af jörðu, er hún tekin út af
lög-boðnum úttektarmönnum i hverjum hreppi. Peir eiga að
taka út hús og mannvirki, er jörðum fylgja, líka skoða
innstæðukúgildi jarðanna, en fráfaraudi leiguliði geldur álag
til viðtakanda að aflokinni úttektargjörð. Eftir fornum
lögum voru úttektarmennirnir 5 eða (í, i ábúðarlögunum 12.
jan. 1884 (31. gr.) eru hreppstjórar úttektarmenn. ^Þar sem
eigi er nema einn hreppstjóri i hrepp, skal syslumaður
nefna að auki svo marga úttektarmenn, sem hreppsnefnd
Frumvarp til landbúnaðarlaga. Reykjavík 1877. bls. 60.
2) Sbr. Páll Briem: Erföaábúð, sjáltsábúð og leiguábúð
(Lög-fræðingur III, bls. 108-172).
3) 1 ritgjörð eftir Pál Vídalíii lögmann, sem prentuð er í
Islend-ingi III, 1862, er bls. 78 og víðar nákvæmlega skýrt frá því, hver hús
eigi að f^dgja jörðum og hve stór eftir dýrleika þeirra.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>