- Project Runeberg -  Förin til Tunglsins /
16

(1884) [MARC] Author: Sophus Tromholt
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

vottur sjest á yfirborði jarðarinnar, hafa liðið löng
tímabil, þegar jafnvel hin allralægstu dýr og jurtir
gátu eigi lifað þar. Jörðin hefir því einhvern tíma
verið óbyggð. J>að er einnig miigulegt, að ýmsar
byltingar, sem vjer höfum ekki minnstu hugmynd
um, hafi eytt öllum lifandi verum á hinum eða
þessum hnétti. Verið getur og að sumir hnéttir hafi
frá upphafi verið svo, að það sje ómögulegt að dýr
eða jurtir geti lifað þar. Allt þetta virðist oss
jafn-sennilegt; en það eru að eins tilgátur og verður að
öllum líkum aldrei annað.

Vjer skulum ekki vera að þessu grufli lengur,
heldur litast lítið eitt um. Vjer verðum þess þegar
varir, að ógnar-auðvelt er að hreyfa sig á tunglinu;
vjer erum svo Ijettir á oss, að vjer líkjumst fremur
fuglum en mönnum, og það er vegna þess, að þar
hvílir 6 sinnum minna aðdráttarafl á oss, heldur en
þegar vjer erum á jörðinni. Oss er svo frábærlega
ljett um að hreyfa limina, að oss mundi vera sönn
gleði í, að geta farið að dansa, ef vjer að eins
hefð-um hljóðfæraslátt, en þar sem loptlaust er, er
heldur enginn hljóðfærasláttur. Jafnvel sá, sem
aldrei áður á æfi sinni hefði stigið dansspor, gæti án
erfiðismuna hoppað og skoppað hjer svo fimlega, að
bezti dansari á jörðinni fjelli 1 stafi. Hver af oss,
sem getur stokkið í einu stökki upp á borð niðri á
jörðinni, getur stokkið hjer jafnljettilega upp á 20 feta
háa hæð. Að standa á höfði er hjer hin bezta
skemmtun, blóðið sígur svo sem ekkert til höfuðsins.
Að stinga einum af förunautum sínum í vasa sinn,
oghlupaburt með hann, er hinn mesti hægðarleikur,
því þungi hans hjér er ekki meiri en 25 pund eru á
jörðinni. Ef vjer köstum steini upp í loptið — hann

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Tue Dec 12 04:27:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/tunglsins/0020.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free