- Project Runeberg -  Andvökur. Eftir Stephan G. Stephansson / III. 1895-1909 /
47

(1909-1923) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

Að slysinu vikum — sem altjent komst að,
                þó annað fyrst bæri í tal. —
Ég sagði’ honum, nú væru sálaðir þrír,
                sem sagt var að meiðst hefðu verst,
Og læknirinn hefði um hitt ruslið sagt,
                það hrikti eða dæi víst flest.
»Þeir spurt hafa upp sérhvern, er særðist og dó«,
                hann svaraði hógvært og spakt;
»Af líkunum fundnu að eflaust eitt
                sé íslenskrar stúlku, er sagt;
Frá námabæ Golden hún nýhorfin var,
                en nafn hennar hérlenzkt þó er,
Og vin á hún engan né útfararmann;
                það á svo að grafa’ hana hér.
Og áður en við leggjum aftur á stað
                er afráðin greftranin stutt,
En presturinn hér er ei nærstáddur nú,
                svo nein verður líkkveðja flutt;
En þeir hafa uppgötvað þjóðerni mitt
                og þekkja mitt erindi og stétt:
Að neita, og vera þar viðriðinn, eins
                er vandamál; hvorugt er létt.
Því henni’ hefir ónefndur orðrómur fylgt
                og allir það straks hafa frétt:
Og grómið af líkinu loðir við mann,
                sem lífernið fengi á sig blett.
Hver einstaklings hrösun hjá erlendri þjóð
                er ávirðing kynbálksins manns.
Og þar er hún viðkvæmust virðingin mín
                og vandhæfust — prestsins og manns.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 02:15:19 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/andvokur/3/0051.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free