- Project Runeberg -  Eimreiðin / I. Ár, 1895 /
117

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

hans bæði hin fornu og nýju, og sú bók er ein af þeim
kvæða-bókum íslenzkra skálda, sem jeg vildi sízt án vera; þær hafa opt
stytt mjer stundir allar, bæði eldri og yngri, og jeg ann þeim
■öllum, og þegar jeg nú get lagt af stað til Islands á morgun fyrir
aðstoð eins vinar mins eptir tólf ára dvöl hjer og lit yfir liðna tíð,
|>á finn jeg, að jeg á ljóðum þessara manna, og kvæðum Steingríms
ekki sízt, frenrur mörgu öðru að þakka það, að þessir dagar hafa
þó átt ekki svo fáar sólskinsstundir.

p. E.

/

Frumbylið.

(Eptir Juhani Aho1.)

Bæði vóru þau vinnuhjú á prestssetrinu. Hann gætti hestanna
og hún annaðist matreiðsluna. A stundum, er þau sátu sitt við
hvort borðshorn og mötuðust, ljetu þau fjúka spaugsyrði; en
opt-ast nær gekk þó á rifrildi milli þeirra. Húsbændunum fannst þeim
koma afarilla saman. »Þau bitast og klórast eins og hundur og
köttur« var viðkvæðið.

En þegar þau vóru ein saman, annaðhvort við fiskiveiðar á
næturþeli, heyannir eða kornuppskeru, þá kom annað hljóð í
strokkinn, og svo fór að lokum, að þeim kom á sarnt um að fara
að hokra. Þau völdu sjer bæjarstæði á keldubakka nokkrum langt
úti í óbyggðum. Var þar nægilegt skógland til ruðnings og
rækt-unar. Þar var stór landspilda alþakin elritrjám, og var hún
sjálf-kjörin til akuryrkju, en beitiengi hugðu þau að rækta báðum megin
lækjarins. Það stóð ekki á öðru en fje til húsabyggingar. Kaupið
var lítið, og varia var til þess hugsandi fyrir þau að reisa bú, áður
■en þau að minnsta kosti hefðu krækt sjer í eina dróg og eina belju.
Þessu hvorutveggju var um að kenna, að brúðkaupið dróst á
lang-inn. En eptir því sem fram liðu stundir, varð bandið æ fastara
og fastara milli þeirra, og jafnframt urðu framtíðarhorfur þeirra
betri. I tómstundum sínum gerðu þau eigi annað en telja
skildinga þá, er þau vóru búin að nurla saman, og reikna út, hve lengi
þau þurftu enn þá að vera í vistinni til þess að ná í upphæð þá,
er þau gætu komizt af með. Enginn varð þess áskynja, að smátt
■og smátt lifnaði hjá þeirn hin ákafasta frelsisþrá og brennandi löngun

1 Juhani Aho er einn hinna helztu af )’ngrí skáldum Finna.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:00 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1895/0127.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free