- Project Runeberg -  Eimreiðin / I. Ár, 1895 /
120

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

garðsins. Hann reif í taumana, því hesturinn seildist út yfir
götu-bakkann til að leita að grastó undir lauffallsbreiðunni. »Rr-rrr . . .!«.

Hesturinn girntist að seðja hungur sitt, hann var grindhoraður
og engu betur á sig kominn en eigandinn.

Vilhjálmur kvaddi mig án þess að hafa augun af kistunni, og
hjelt leiðar sinnar. Bjálkaendarnir ristu tvær jafnhliða rákir í
jarð-veginn.

Jeg hjelt í gagnstæða átt og kom að dýi nokkru. Hafði þar
verið byrjað að grafa skurð til fráveitingar, en hætt í miðju kafi.
Götuslóðinn, sem jeg kannaðist við frá brúðkaupsdeginum, leiddi
til hússins.

Fyrir utan garð bauláði mögur belja, og í húsagarðinum, er
stóð opinn, hrein svin eitt. I miðjum garðinum stóð tómt rúm
og var sængurfötum hinnar framliðnu varpað á girðið.
Bjálka-höfuðin stóðu enn sem fyrr ótelgd. Rúðurnar í glugganum vóru
dökkar og óhreinar og inni fyrir stóð visið blóni í dálitlum
bark-■ dalli.

Þó var hann búinn að ryðja dálítinn skika af óbyggðinni. A
bersvæði því í skógnum, er hann hafði höggvið, lá ræktuð ekra,
á að gizka 2 tunnur lands1, og dálitia landspildu hafði hann grafið
fram. En þar virtust kraptarnir hafa þrotið. Birkiskóginn hafði
hann fellt og úr elrirunnanum hafði hann gjört ekru. En að baki
lukti dimmur greniskógur eins og órjúfandi múrveggur. Þar hafði
hann orðið frá að hverfa.

Jeg stóð langa hríð í garðinum við hið auða frumbýli.
Storm-urinn hvein ákaflega í skógnum og söng í byssupípunni með
ömurlegum raunaróm.

Fyrsta kynslóð frumbýlinganna er búin að vinna ætiunarverk
sitt; þessi rnaður megnar eigi að halda verkinu lengra fram. Afl
hans er brotið, eigi síður en konu hans. Eldurinn í auga hans
er kulnaður út, og traust það, er hann á brúðkaupsdeginum bar
til sjálfs sín, er horfið.

A eptir honum verður líklega einhver nýr maður til að taka
við kotinu. Máske verður honum betri heilla auðið, enda er honum

1 i tunna lands er 14000 □ álnir.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:00 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1895/0130.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free