- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
253

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[253

er svipað því, sem er hjá Olaus Magnus. í horni korts-

ins stendur þessi klausa: »Islandia, iseyja, liggur i norð-

urhafinu og er lengst frá suðri til norðurs, hún er svo

stór, að hun er nærri 200 mílur á lengd; sumir ætla, að

það sé Tliile eða Thule, þar segir Plinius, að um sumar-

sólstöður, er sól fer gegnum Krabbamerki, sé nærri engin

nótt, en um vetrarsólstöður er þar nærri enginn dagur,

að þvi er Solinus segir. Landið framleiðir úlfa, birni,

hrafna og fálka, sem sagt er að séu hvítir; mælt er, að

þar séu andar, sem augljóslega bjóða mönnum þjónustu

sína; auk þess eru þar eldar, er eyða vatni, og í sjónum

livalir stórir sem fjöll, livalirnir heita á þeirra tungu trol-

hval, það er ekki hægt að hræða þá eða leika á þá nema

með lúðurhljómi, og með því að kasta trétunnum í sjóinn;

t

þeir sökkva skipum«. I annari eyjalýsingu, eptir Por-

cacclú 1576, er líka kort af Islandi, það er mjög likt Zeno-

kortinu, og flest hin sömu skrípanöfn á því, sjórinn

kringum landið er allur frosinn, en þó vakir i ísinn hér
t

og hvar1. I sjókortasafni L. I. Wagenaer’s 1583 liggur

ísland milli 65^2 0 og 69° n. br. og er kringlótt með skor-

um inn í á allar hliðar, þar eru all-mörg nöfn á höfðum

og fjörðum, og þó þau séu bjöguð, má skilja flest; höf-

undurinn hefir haft mjög óglögga hugmynd um lögun

landsins, en hefir farið eptir einhverju fjarða- og nafna-

tali; hér koma fyrir ýms nöfn, sem ekki hafa sézt á kort-

unum fyrr. Þegar nánar er að gáð, eru allar líkur til,

að Wagenaer hafi farið eptir fjarða- og hafnatali Laurits

Beneclict’s 1568, nöfnin á kortinu eru hér um bil hin sömu

og þar, nema hvað þau eru miklu færri. Hér finnst mér

eiga vel við, að geta um sjómannafræði L. Benedict’s,

því henni hefir f\Trr verið lítill eða enginn gaumur gef-

t

inn, og er hún þó merkileg, að því er Island snertir. L.
Benedict segist hafa ritað bókina eptir fyrirsögn hinna

1) L’isole piu famose del mondo descritte da Thomaso Porcacchi
da Castiglione. Venetia 1576.

2) Speculum nauticum. Spiegel der Zeevaerdt doer Lucas
Ianss. Wagenaer 1583. Lugd. Batav. 1586.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0267.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free