- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
225

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

225

leið til Kaupmannahafnar og svo 5. júli áleiðis til íslands,
komu þeir við i Arendal i Noregi og urðu að dvelja þar lengi
meðan skipið var að taka timburfarm; létu þeir ekki aptur
frá landi fyrr en hinn 20. ágúst; ferðin gekk nokkurnveginn
greiðlega framan af, en hinn 30. ágúst braut elding helming
ofan af báðum möstrum, svo það tók langan tima að gjöra
vió þau og koma reiðanum í lag, það tókst þó á endanum
af því logn var til allrar hamingju þá daga og kyrr sjór.
Hinn 5. september sáu þeir Langanes og hinn 7. s. m. kornust
þeir á Siglufjörð, því þangað var ferðinni heitið. Frá
Siglu-firði fóru þeir Thienemann til Akureyrar og dvöldu þar fram
eptir vetri, en hinn 6. febrúar brutust þeir í snjó og ófærð
upp i Fnjóskadal og til Húsavíkur, þar dvöldu þeir til hins
25. apríl og fóru svo aptur til Eyjafjarðar. Frá Húsavík fóru
þeir félagar ýmsar smáferðir til náttúruskoðana og veiða, þeir
lærðu á skíðum og gátu því víóa farió, þó ófærð væri, enda
töldu þeir hvorki eptir sér erfiði né áreynslu. Vetrartimann
notuðu þeir vel, athuguðu fugla og spendýr, einkum seli,
teiknuðu þá og tróðu út hami og söfnuðu allmiklum fróðleik
um líkamsbyggingu þessara dýra og lifnaðarháttu; Thienemann
var læknir góður og streymdu til hans sjúklingar úr öllum
áttum, hafði hann því nóg að starfa og læknaði marga, einkum
þá sem augnveikir voru. Um veturinn lærðu þeir félagar
dönsku og nokkuð i íslenzku og var það þeim til mikils
stuðnings á ferðunum ásamt lækningunum, þvi menn
að-stoðuðu þá á margan hátt og útveguóu þeim náttúrugripi;
sjálfir urðu þeir og betur færir um að skilja islenzka siði og
háttu manna og er lýsing þeirra i þvi efni bæði rétt og
skil-merkileg o.g skarar ferðabók þeirra mjög fram úr mörgum, er
síðar voru ritaðar.

Hinn 17. mai fóru þeir Thienemann út i Grímsey og
dvöldu þar til hins 9. júní; höfðu þeir aðsetur sitt í kirkjunni

hefir auk ferðabókarinnar ritað tvö stór rit um egg og hreiður fugla og
er þar einnig sagt nokkuð frá íslenzkum fuglum (Systematische
Dar-stellung der Fortpflanzungsgeschichte der Vögel Europa’s. Leipzig 1825
—1838, 5 hepti, og Fortpflanzungsgeschichte der gesamten Vögel.
Leipzig 1845—1856. 10 hefti með 100 litmyndaspjöldum).

15

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0233.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free