- Project Runeberg -  Á ferð og flugi : Kvæðabálkur /
39

(1900) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - XIV. Stýrur i augum

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

XIV.

Stýrur í augum.

——

Ég skildi’ ekki, hvað hafði svift mér úr svefn’
                — og samt hafð’ eg raknað við snögt,
Svo hlutirnir kringum mig, staður og stund,
                alt stóð fyrir augum mér glögt
Sem hefði’ eg ei sofnað; en svo varð mér hverft,
                hvert sæti var mannlaust og autt
Og vagninn lá grafkyr; ég gægjast sá inn
                um gluggana dagsljósið rautt.
Í opnaðar vagndyrnar flýjandi fram
                hver farþegi’ í skelflng sér tróð,
Og saman við klið, sem af steðjandi storm,
                rann sturlunarskvaldur og hljóð.
Ég spratt upp, þó hefði’ ekki hugmynd um það
                hver háski þar sæist á ferð.
— Þú skuggann á dyrunum getur ei greint
                unz gest þinn í ljósmáli sérð.
Ég hljóp upp í framdyrnar, þar var svo þröngt
                í þvögu’ eins og alt hefði klemst.
— Já, lifið er glettið og lokar mér oft
                þá leið, sem er beinust og skemst!
Ég sneri til baka. Hvort gnötraði gólf
                og gliðnaði hliðveggjum frá?


<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 01:44:57 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/aferdflugi/0041.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free