Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
Í bænum, þar seinasta viðdvölin varð,
með vagni okkar tók hann sér far,
Og þess vegna hafði eg ei fundið hann fyr —
Í förinni konan hans var.
Hann hafði nú aflokið erindi Guðs
og áleiðis kom nú frá því,
Áð »prédika boðskapinn« sálunum, sem
að sátu þar »myrkrinu« í.
En andhælis gengur, þó uppihaldslaust
þeir argi um þau kirkjunnar mál.
— Nei, kerlingin gat ekki í gluggalaust hús
flutt geislann í lokaðri skál.
Og eg hafði verið við »vígsluna« hans,
hann »valsa« með Ragnheiði sá;
Og innan við tvítugt við »tuskuðumst« oft
og tvítugir »drukkumst við á«.
Sem »stórveldin« saman við sælduðum margt,
en sífelt í »vopnuðum frið«.
— Þó rígur sé meðfæddur Bósa og Brand’
þeir brjóta ekki heimilisgrið.
Sem húskampar bunguðu enn brýrnar hans fram
og bustin á enninu há
Með innsignum vindskeiðum var eins og fyr,
og valsaugun skjáblámagrá;
Og stoltið jafn laundrjúgt í ljúfmensku hans
og lundernið dulrátt og framt,
Eins þræsingslegt bros hans, sem forðum, mér fanst
— en framkoman prúðmannleg samt.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>