- Project Runeberg -  Andvökur. Eftir Stephan G. Stephansson / IV. 1908-1923 /
174

(1909-1923) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Kveðja, send “Kveldúlfi”.

— Félagi íslendinga í Vancouver, B. C. —

Ykkur sendir ávörp kær
“Úlfurinn” strokni og ljóti!
Meðan hann er fundar-fær,
Fram að hinsta “móti”.

1913

Tylliboðin.

Þú skáld getur orðið — Og aldregi standa
Á okkur mun lengi þér hugnun að sýna!
Því við skulum breiða o’ná beinin,

Og skildinga saman í hnöllung þér handa
Og hlunka ’onum niður á gröfina þína,

Og höggva þér hörpu í steininn.

1913

Alrnenn velti-ár.

Ekki er guð á góðu sár!

Gangirðu á hlunna fremstu,
Minnir þig kannske eitt gott ár,
Ef um sextugt kemstu.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 02:15:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/andvokur/4/0180.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free