Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Guðmundur Thorsteinsson, cont.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
Muggur var fæddur á Bíldudal 5.
september 1891. Móðir hans,
Ásthildur Guðmundsdóttir Thorsteinsson, var
þá húsfreyja á einu stærsta og merkasta
heimili landsins. Milli hennar og
Muggs voru alla æfi miklar ástir.
Muggur varð ekki nema 32 ára að
aldri. Hann átti við mikla vanheilsu
að stríða slðustu ár æfi sinnar. Dvaldi
hann þá langvistum utanlands til heilsu
-bótar. Hann lézt á heilsuhælinu í
Sölleröd vorið 1924. Lét hann eftir sig
fjölda merkra mynda. Hin merkasta
þeirra mun vera altaristafla, sem hann
málaði 1921 á Ítalíu, "Kristur læknar
sjúka.”
Honum var séerstaklega sýnt um að
segja sögur, enda var hann barngóður
með afbrigðum og þekkti betur salarlíf
barna en flestir aðrir fullorðnir.
Hann gerði myndir við “Þulur” frú
Theodóru Thoroddsen, móðursystur
sinnar. Ennfremur gerði hann myndir
við barnakvæðið alkunna “Tíu litlir
negrastrákar.”
Bók þessa samdi hann og teiknaði
handa systurdóttur sinni, Helgu
Egilson, árið 1921, er hann var á leið frá
Ítalíu til Íslands með flutningaskipi.
Myndin, sem fylgir þessum línum,
er tekin haustið 1919, þegar Muggur
lék hlutverk Ormars i kvikmyndinni
“Sögu Borgarættarinnar.”
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>