- Project Runeberg -  Eimreiðin / I. Ár, 1895 /
4

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Brautin - Járnbrautir og akbrautir

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

Og kvíðið þið engu, og komið þið þá,
sem kyrrir og tvíráÖir standið;
því djarfmannlegt áræði’ er eldstólpi sá,
sem eyðimörk harðstjórnar leiddi’ okkur frá,
og guð, sem mun gefa okkur landið.

Þ. E.
——————

Járnbrautir og akbrautir.

[1]


»Járnbrautirnar eru vegir nútímans.«

Með þessum orðum byrjar ýtarlegt frumvarp til laga um
smá-brautir, er þeir bankastjóri H. E. Berner og mannvirkjafræðingur
Endre O. Johannesen báru upp á síðasta stórþingi (þingskjal 153).
Sem einkunnarorð yfir frumvarpinu hafa flutningsmenn þess þar að
auki sett þessi heppilegu og sönnu orð hins fræga enska sagnaritara
og þingmálagarps Macaulay’s: »Ekkert hefur eflt menningu þjóðanna
metra en Jbœr uppgötvanir, er minnkað hafa fjarlœgðina í tíma og rúmi.«

Menn munu af þessu einu geta ráðið í, hvert frumvarpið stefnir,
eða að flutningsmenn {sess vilja, að stórþingið og stjórnarvöldin yfir
höfuð hagi sjer allt öðruvísi en hingað til gagnvart
járnbrauta-gjörðinni og öllu, er þar að lýtur. Þeir ætlast til, að á uppdrætti
Noregs skuli ekki framar sjást að eins fáein svört stryk hingað og
þangað, sem eiga að tákna járnbrautir. Nú á á uppdrætti Noregs
að sjást járnbrautanet, sem dreifir sjer um land allt þvert og
endi-langt og sameinar og bindur hvern landshluta við annan, hvert
hjerað við annað. Allir bæir og öll byggðalög, að minnsta kosti
hin stærri, eiga að öðlast hluttöku í þeim stórkostlegu gæðurn,
sem gufan hefur i för með sjer nú á tímum. Járnbrautagjörðin á
að vera eins og hjarta, sem lætur lífið slá og leika um alla parta
líkamans, ýmist gegnum hinar stærri, ýmist gegnum hinar minni
æðar.

Annað eins og þetta álitu menn fyr meir ómögulegt. Menn
sögðu sem svo: Noregur væri fjallaland, en járnbrautirnar væru
börn sljettlendisins. Auk þess væri svo strjálbyggt í Noregi, einar
éhræðurá hverjum □ kílómetra2, þar sem í Sviþjóð væru helmingi


[1] Grein þessi er þýdd úr tímaritinu »Nordisk rundskue« (Norræn hringsjá),
15. jan. 1895, og er þar tekið fram, að hún sje rituð af járnbrautafræðingi.
1 kílómetri (= 1000 metrar) = 3186,2 fet eða tæplega 1/8 úr danskri mílu.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:00 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1895/0010.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free