- Project Runeberg -  Eimreiðin / I. Ár, 1895 /
55

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

ungsins virðingu heldur hann uppi einkarjettindum æðri
mennt-unar frá liðnum tíma; með vanans seiga afli hefur hann staðið
móti kröfum tímans, og að eins látið lítið uppi við hann. En
lífið í kringum oss hrópar hærra en svo, að hægt sje rneð öllu
að skella við þvi skolleyrunum. Hinumegin eru nokkrir
barna-■og alþýðuskólar, sem stofnaðir hafa verið á síðasta áratugi; þeir
eru börn aldarháttarins, en enn lasburða og lítilfjörlegir. I
þess-um nýgræðingum er þó fólgin von ókomna tímans, þrátt fyrir
alla kvilla, og þeir finna það með sjálfum sjer. Þeir eru farnir
að leita jafnrjettis við latínuskólann og krefjast rúms í honum,
sem, sökum fyrirkomulags síns, stendur þeim algjörlega fyrir
þrifum. Er nú þessum skólum, hvorum um sig, svo háttað, að
mál sje komið til að gróðursetja nýju frjókvistina á gamla
trjenu?

Jeg skal J>á fyrst drepa á þær tillögur, sem mjer hafa borizt
til eyrna, um samband latínuskólans við gagnfræðaskólann.
Jf*ví-næst ætla jeg að fara nokkrum orðum um þá endurbót, sem
latínuskólinn að minni hyggju þarf með, til þess í sannleika að
fullnægja vorum tima sem skóli, er veiti nemöndunum almenna,
fjölhæfa og notasæla æðri menntun.

I.

í hinni nýtilegu ritgerð sinni »Um menningarskóia« hefur
hr. Bogi Melsteð (jeg er honum samþykkur i aðalstefnunni, en í
ýmsum einstökum atriðum ber okkur á rnilli) bent á það
neyð-arúrræði að fella saman latínuskólann og Möðruvallaskólann
þannig, að bætt væri einum bekk neðan við latínuskólann, og
fyrst í 3. bekk hans byrjað á latinu og grísku. Svipuð uppástunga
virðist hafa náð samþykki á kennaraíundinum 1891: »í 2 neðstu
bekkjum hins lærða skóla sje eingöngu gagnfræðakennsla samskonar
■og á Möðruvöllum. Lærisveinar, sem lokið hafa prófi þaðan,
■setjist próflaust i 3. bekk lærða skólans.« Þetta fyrirkomulag
kann nú að sýnast mörgum allæskilegt, en ekki fæ jeg betur sjeð,
■en að ýnisir annmarkar sjeu á því, og skal jeg telja nokkra.
Aptur bera uppástungurnar vott um óánægju manna með ástandið
eins og það er, og að þörf er á umbótum.

Möðruvallaskólinn mun einkum hafa verið stofnaður handa
•bændaefnum, og væri þeim tilgangi hans að minni ætlun hrundið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:00 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1895/0061.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free