- Project Runeberg -  Eimreiðin / I. Ár, 1895 /
66

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

á ofurlítinn fílabeinshnapp í veggnum, kveða við bjöllur i. öðrum enda
hússins og að vörmu spori skýtur upp kjólklæddum og uppstroknum
þjóni og bíður hann skipana gestsins kengboginn af kurteisi. Fer hjer
líkt og segir í »Púsund og einni nótt«, er Aladdin strauk töfralampa
sinn. Eins og aö líkindum ræður er allt rándýrt á húsum þessum, og
koma hjer að staðaldri þeir einir, er vel eru efnum búnir. Fá eru aðrir
veitingastaðir meðalstjettum ætlaðir; standa þeir feti neðar hvað skraut
snertir og er verð þar skaplegt á mat og drykk. Hjeðan má rekja sporið
niður á við, gestastofan færist niður í kjallarann og kjallarinn verður
dýpri og dýpri og myrkari og myrkari. Loks er drykkjustofan orðin að
kolsvartri kytru með sand á gólfi og gengur þar rauðeygður og
bláþúst-aður brennivínsberserkur um beina. Dettur manni ósjálfrátt í hug
svarti-skóli og sjálfur djöflahöfðinginn. Gestir þeir er aö garði koma, eru bystir
og brúnaþungir, rámir og hásraddaðir, rifnir og tættir, klipnir og klóraðir
og alloptast með eitt eða tvö glóöaraugu. Fykir ráðlegast aö eiga sem
minnst mök við þá, og verður það mörgum manninum, að hann fagnar
þvi stórum, að sleppa heill á húfi upp úr jarðhúsum þessum, eigi siður
en lærisveinar fögnuðu því á fyrri ölduni að sleppa úr svartaskóla.

Svo kann nú mörgum að virðast, sem þessi aragrúi af gildaskálum
bendi til þess, að Danir sjeu drykkjumenn miklir, og verður það varia
úr skafiö. Þó ber þess að gæta, að allur þorri ókvongaöra manna, er
eigi lifa í foreldrahúsum, neyta máltíöa sinna á veitingastofunum; er
það jafnvel eigi sjaldgæft, aö nýgipt hjón neyti þar miðdegtsverðar sins
og þykir það umsvifaminnst.

Flestum drykkjuhúsum er lokað um miðnættisbiliö, en þó eru
nokkur, er opin standa fram yfir þann tíma. Verður J>að mörgum
manninum fyrir, er aðrir sómamenn ganga til hvilu, að hann leitar i
faöm J>eirra, er öllum stendur opinn og öllum heitir svölun og
hress-ingu eptir strit og armæðu dagsins. Pað sem framar öllu öðru veitir
stöðum þessurn einkennilegan blæ, er þaö, að hjer safnast fyrir eigi
ein-göngu karlmenn, heldur og stórhópar af konum þeim, er um kvöldleytið
rölta um strætin til mannfanga. Pegar stigið er inn i hús þessi, verða
jafnaðarlega fyrir augum allmargar stofur, hver fram af annari, og standa
dyr allar opnar á milli. Yfir öllu hvílir kafþykkur reykjarmökkur, er
eykst með hverri stundu, fvví allir sitja jtar gestir, bæði karlar og konur,
með vindla i munni og blása frá sjer reykjarstrókunum allt hvað af tekur.
Fram með veggjum standa borð við borð og sitja þar menn og konur,
sveipuð reykjarblæjunni eins og bylgjandi faldi, og drekka tvimenning.
Lætur kvennþjóðin eigi sitt eptir liggja, en tvihendir ótt og titt stórar
og viðar mjaðarkollur og kneyfir út. Á milli teyganna gengur á
kossa-flensi eða rifrildi, og gerast þar bæöi menn og konur ölvuð. Jafnharðan
og nýja gesti ber að og þeir hafa tyllt sjer niður og dreypt á miðinum,
koma þar kvennsniptir steðjandi, ávarpa þá kumpánlega, mælast
ófeimn-islega til að fá i staupinu og gera sig jafnvel stundum svo
heima-komnar, að þær tylla sjer steinþegjandi á knje þeim og reka að þeim
rembingskoss. Er eigi laust við að sumir kalli þetta flennuskap, eigi sizt
þeir, er nýkomnir eru heiman af Fróni. Heldur þessu athæfi þannig
afram til þess er lokaö er. Fer margur unglingurinn hjeðan út með

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:00 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1895/0072.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free