- Project Runeberg -  Eimreiðin / I. Ár, 1895 /
68

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

fyrir þá að neita sjer um nokkuð það, er stuðla må til þess að gera
lifið þægilegt og unaðsríkt. Öðru hvora gengur á heimboðum og
stór-veizlum meðal þeirra, er kosta svo þúsundum króna skiptir. Lætur
húsráðandi nokkru fyrir veizludaginn boð út ganga til vina sinna og
vandamanna ritað á ilmandi brjefspjöld. Veizludaginn sjálfan renna þeir
silspikuðu hver á fætur öðrum með vagnana fyrir dyrr skrauthússins, og
út úr vögnunum skreiðast spikfeitir istrubelgir, er skjögra á beinunum
af ofáti og ofdrykkju; svipar þeim eigi alllítiö til troðfylltra peningapoka,
enda er þar náið nef augum. í kjölfari þeirra má lita ljettfættar blómarósir
skreyttar gulli og gimsteinum, berar niður á brjóst og með snjóhvitar
axlir og háls af dustinu, er þær strá yfxr hörund sjer til fegurðarauka.
Þegar inn i fordyri hússins kemur, eru þar þjónar til taks, er fletta gesti
yfirklæðum, en þeir halda að svo búnu inn 1 hina fagurtjölduðu sali og
kasta kveðju á húsráðanda. Er hjer ekkert sparað, er til )rndis og ánægju
má verða. Gólfin eru þakin mjúkum, pykkum ábreiðum, veggirnir eru
alskipaðir fögrum litmyndum, er sumar hverjar eru nafnkunn listaverk,
1 gluggum og hornum er alsett litfögrum og ilmandi skrautblómum og
mjúk silkiklædd hægindi bjóða til hvildar. Innan um blómskrautið sjer
til og frá á dýrindis höggmyndir úr marmara. Yfir alla þessa dýrð dreifa
rafmagnslamparnir snjóhvítu töfraljósi og þykir þaö stórum prýða. Þegar
kveðjur eru afstaðnar og inngangsseremónium lokið, setjast gestir til borðs,
og eru fram bornar margskyns krásir og gómsæt vin; gerist hjer sannmæli
það, er í æfintýrunum gömlu stendur, að þar eru bæði pipraðir páfuglar
og saltaðir sjófiskar og piment og klaret, og leikið er þar á sýmfón og
salteríura gestum til ununar. Við disk hvem liggur brjefspjald og eru þar
á skráöir rjettir þeir, er á borðurn verða; er þetta vist til þess ætlað,
að gera boðsfólki aðvart, svo eigi gleypi það í sig allt of mikiö þegar
í byrjun, en ætli sjer af, því rjettirnir eru margir. Meðal gestanna
ríkir glaumur og gleði og þó allt hæfilegt; verður hjer allt að vera
innan vissra takmarka, þvi tízkan er vægðarlaus siðameistari og setur
hverjum einum meðal hinna æðri stjetta strangar lífernisreglur, er eigi
má út af bregða. Æskulýðurinn iðar í skinninu af fjöri og kæti og er
hjer fátt til að hepta gleðina, því eigi Jparf að bera áhyggju fyrir
morgundeginum. Fram eptir allri nóttu ómar hljóðfæraslátturinn og eptir
gólfinu svifa þessi óskabörn hamingjunnar óstöðvandi i hring eins og
stjörnur i sólkerfinu, og ungmennin þrýsta meyjunum fastar og fastar i
faðm sjer; roði færist um kinnarnar, sigurbros leikur um varirnar og að
baki svanadúnsbryddum blævængjunum tindra augun djúp og snörp.
Svifa þau þannig i algleymingi og ’nirða hvorki um himin nje jörð, en
aðeins um stundina, sem er að líða. En meðan óskabörn þessi teyga
bikar lifsins í fullum mæli , dragast margir fáklæddir vesalingarnir, er
hvergi eiga höfði sinu að að halla, um strætin í hryssingnum og
kuld-anum og stara með sultarsvip upp á skinandi Ijóshafið.

Alltitt er það, að auðkýfingar borgarinnar eigi sjer stórbýli og

skrauthús út um land og flytja þeir þangað, er vora tekur og litt er

viðunandi í borginni fyrir sakir hita og svækju. Pað er og alsiða, að

jþeir á sumrum eða öðrum tima árs taki sjer ferð á hendur til útlanda
og dvelji þar skemmri eöa lengri tíma til skemmtunar og tilbreytingar.
Skraut þessara stjetta í klæðaburði keyrir frani úr öllu hófi, og mætti

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:00 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1895/0074.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free