Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Það er ástarfar milli álfkonu t. d. og mennsks manns, sem jeg á
við hjer, og eins hitt, að álfkona leitar hjálpar hjá mennskri konu
í barnsnauð, I álfasögunum i ísl. þjóðsögum og ævintýrum kemur
hvorttveggja mjög opt fyrir, og það sem vjer hjer eptir höfum af
álfum að segja, er tekið eptir og úr þessum álfasögum.
Eptir því sem tímar liðu fram, hlutu hinar upprunalegu
hug-myndir um álfana að gleymast, að sama skapi sem heiðnar
trúar-skoðanir týndust, og breytast á margvíslegan hátt; og hefur þegar
verið eitt dæmi að minnsta kosti sýnt í þá stefnu.
Um uppruna álfa fer nú tveim sögnum. Onnur er sú, að
þeir sjeu systkin mannanna, börn Adams og Evu; segir sagan, að
Eva hafi falið suma krakkana, þegar guð heimsótti þau Adam einu
sinni, af því að þeir hafi. verið óþvegnir og óhreinir; þá hafi guð
sagt: »Það, sem skal hulið fyrir guði, skal hulið fyrir mönnum«;
þessir krakkar hafi svo orðið forfeður huldufólksins. Hin sagan
er sú, að þeir sjeu englar, sem engu ljetu sig varða aðferð Lucifers —,
»vóru með hvorugum« —; þeir vóru því reknir niður á jörð og
urðu álfar.
Annars er trúin sú, að álfar fæðist og deyi sem menn, en verði
alíajafna langlífari; eru þeir að því leyti, sem mörgu öðru reyndar,
á æðra stigi.
Að útliti til er það allt fallegt fólk og föngulegt, svipmikið,
en opt nokkuð stórskorið. Það er optast nær bláklætt (f>. e. í
svörtum vaðmálsklæðum, sem er aðalbuningur Islendinga sjálfra);
þó er einstöku sinnum talað um rauð klæði; kirkjufólk er í
lit-klæðum, og við hátiðleg tækifæri er það prýtt gulli og gersemum,
kvennfólkið hefur skautafald, hempur og að öðru leyti búning sem
mennskar konur. Að búningur álfmeyja hafi yfir höfuð verið
álit-legur og ekki af lakara tagi sýna t. d. þessar vísur:
A bláu var pilsi en beltið var vænt,
bundið um enni silkiband grænt,
skautafald háan, hvitan sem ull,
á hendinni bar hún þríbrotið gull.
Blátt var pils á baugalín,
blóðrauð líka svuntan fín,
lifrauð treyja, lindi grænn,
líka skautafaldur vaenn.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>