- Project Runeberg -  Eimreiðin / I. Ár, 1895 /
103

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

og á slikt að hafa við borið árið 1770. Allur þess konar greiði
og hjálp er launuð með ríkmannlegum gjöfum og þakklátsemi.

Að siðustu skal þess getið, að álfar hænast mjög eptir börnum
manna og leitast opt við að heilla þau eða lokka þau með sjer
burt frá bænum, þegar enginn gætir jþeirra1. Ef börnin sýna
mótþróa, svo að álfurinn nær þeim ekki, sinnist honum opt og
slær þá barnið á kinnina, og fær það þá bláan blett á hana. Svona
skýrðu menn þessa óskiljanlegu meðfæddu bletti, sem einstöku
menn höíðu og hafa. Stundum vilja álfar ná i börnin með því
að hafa skipti á þeirn og álfabörnum (seni reyndar optast eru
gamlir álfar — »átján barna faðir í Alfheimum«); skiptir þá svo
um, að börn, sem áður vóru spök og gæf, verða nú óspök og
láta öllum illum látum; það eru umskiptingarnir, sent allir
þekkja.

Svona var álfatrúin á Islandi til skamms tima og saga hennar
i stuttu máli. Nú er hún að mestu eða öllu dauð á Islandi;
menntunin, skólarni’r og framfarirnar hafa orðið henni að fjörlesti,
og álfarnir hvílast nú í kirkjugörðum sinurn og rísa aldrei upp
aptur. »Allrar veraldar vegur vikur að sama púnkt«. »íslenzkar
þjóðsögur« er grafskriptin.

Þessi álfatrú er í mörgu lærdómsrík. Hún er nokkurs konar
skdldskapur þjóðarinnar, en með öllu ósjálfráður; sveigist hún
stöð-ugt meir og meir að því að verða mynd af íslenzku mann- og
þjóðfjelags-lífi; álfarnir verða æ mennskari og mennskari i öllu
sína eðli og athæfi; því er það svo mikils vert, að geta fylgt
henni, þrætt hana svo að segja fet fyrir fet. Og hún truflast ekki
eða blandast af neinum utan að komandi eða útlendum áhrifum;
frá því á 14. öld að minnsta kosti er hún alíslenzk og heldur áfram
að vera það til endaloka. Heiðin trú fór — að vorri hyggju —
sama veginn síðustu aldirnar, sem hún lifði; en þar eru nú margar
skoðanir um, hvernig henni hafi verið varið, og er það mikið
mein, að svo skuli vera. En um álfatrúna á Islandi er enginn
efi eða óvissa. Af allri hjátrú liðinna tíma er hún fegursti og
ljúfasti þátturinn, og hún er sá sanni spegill, er þjóð vor getur
sjeð sig sjálfa í, sitt líf og sinn hugsunarhátt.

Finnur Jónsson.

1 Hvernig standi á þessari trú, er mjer el^n með öllu ljóst.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:00 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1895/0113.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free