- Project Runeberg -  Eimreiðin / I. Ár, 1895 /
130

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

hreppstjórinn, nokkrir menn úr hernum og Pjetur. En þann dag
var jeg bundinn við skólann og fjekk ekki heldur um kvöldið að
fara út á hjáleiguna.

Af því mjer vaf bannað þetta, fannst mjer allt málið miklu
skuggalegra. Þetta kvöld dimmdi snemma og sló dökkva á sjóinn.
En þar er ströndin ljós og víða ber og blásin. Far var mikið á
skýjunum og menn bjuggust við illviðri. Þá kom eldur upp á
prestssetrinu og gestirnir komu flestir til að hjálpa til að slökkva;
það var losað um stóra björgunarstigann, sem annars var geymdur
með fram skemmuveggnum og lá þar á hlið. Hann var ákaflega
þungur í vöfum og áttu menn ekki hægt með að reisa hann, þótt
margir gengju að í senn, þangað tíl faðir minn brauzt gegnum
mannþröngina, bað alla að víkja frá og reisti stigann einn. Eetta
gengur enn í munnniælum þar í sókninni og lika hitt, að
hrepp-stjórinn, ofurlítill, hnellinn og spræklegur sívalningur, tók sína
vatnsfötuna í hvora hönd og gekk með þær upp allan stigann og
allt upp á torfþakið. Þetta var undarlegt kvöld. Þessi sorti yfir
íirðinum, þotið á skýjunum, óttinn sem vofði yfir öllu vegna
af-tökunnar, eldurinn og uppþotið á bænum . . . og svo dauðaþögnin
á eptir, svo hljóð og hvíslandi allt í kring, inni í hverri stofu og
úti í hverju bæjarsundi. Menn horfðu að heiman á, hve Ijósið
brann rólega í gluggunum á hjáleigunni.

Þar sat Jakob skólakennari hjá Pjetri vini sínum. Þeir, sem
gengu út þfangað, sögðu, að þeir væru að syngja sálma og biðjast
fyrir. Faðr Pjeturs og systkini komu um kvöldið sjóveg, gengu
heim á hjáleiguna og kvöddu hann. Jeg heyrði sagt, að það lægi
vel á honum, hann væri viss um að verða hjá guði næsta dag,
og það var sagt, að hann hefði beðið innilega að heilsa móður
sinni og lagt ríkt á við þau, að vera henni góð. Sumir sögðu,
að hún hefði verið með í bátnum, en ekki viljað fara heim. Þetta
var ósatt og eins hitt, að þau hefðu verið við aftökuna, og þó
var það sagt á eptir.

Undir eins og jeg vaknaði morguninn eptir, sló að mjer ótta.
Veðrið var orðið gott, en menn tóku valla eptir því; allir töluðu
lágt og svo lítið, sem hægt var. Jeg átti að fá að fara með og
horfa á, og flýtti mjer að ná í kennara minn, því mjer var
strang-lega skipað að halda mjer til hans. Báðir prestarnir komu út í
prestaskrúða, við gengum niður til naustanna og fórum sjóveg
mestan hluta vegarins. Pjetur og þeir, sem með honum vóru,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:00 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1895/0140.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free