Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Ié5
slíkt sem þetta, og vitum vjer þó fyrir víst, að þeim er það
full-kunnugt, að minnsta kosti sumum hverjum.
Viðlika skortur á sjálfstæði, einurð og drengskap kemur og
eigi allsjaldan fram við umræðurnar á alþingi. Það vantar ekki,
að menn sjeu nógu frakkir í þvi, að dangla á stjórninni, og ausi
á hana hrakyrðum, bæði fyrir það, sem henni er að kenna og
ekki að kenna — af því stjórnin er nógu langt í burtu og aldrei
heyrir, hvað menn segja. En eigi landshöfðingi eða aðrir
nær-staddir embættismenn í hlut, þá vill nú stundum koma annað
hljóð í strokkinn. Þá leggja menn optast niður rófuna og verða
annaðhvort klumsa eða gera sjer tæpitungu og fara í kringum
efnið eins og köttur í kringum heitt soð. Maður getur nú skilið
i þessu um embættismennina, en erhðara er að sldlja, hvað
bænd-um gengur til. Og þó er það sannast að sega, að einmitt hjá
sumum þeirra kveður hvað mest að þessum heigulskap og
ein-urðarleysi.
Þó oss væri skapi næst, að minnast á margt fleira athugaveit
í fari bæði þingmanna og embættismanna — og nóg sje til —, þá
ætlum vjer þó að låta hjer staðar numið að sinni, enda stendur
það ekki oss næst að gagnrýna alþingi opinberlega. Vjer höfum
aðeins viljað benda á, að þörf væri á að gera það, því ef
hættu-íeg átumein fá að grafa um sig óátalin hjá beztu mönnum
þjóð-arinnar — og menn verða að ætla, að ekki sje valið af verri
end-anum, þegar verið er að lqósa sjer löggjafa •—, þá er öllu
þjóð-fjelaginu stofnað í voða. Ef svo fer um hið græna trjeð, hvernig
mun þá fara um hinn feyskna stofn.
V. G.
Fuglaveiðar í Vestmannaeyjum.
Eptir porstein lækni Jonsson.
Það eni að eins þrenns konar fuglar, sem hjer eru veiddir að mun:
lundt, fýll eöa fýlungi og svartfugl. Það sem nefnt er einu nafni
svart-fugl eru að vísu 3 tegundir: langvia, álka og stuttnefja, en það er að
eins langvían og langviuveiðin, sem nokkuð hefur kveðið að. Auk
þess-ara fugla verpa hjer nokkrar aðrar fuglategundir, svo sem ryta, teista,
skrofa, 2 tegundir af drúöa eða sjósvöhi, nokkrar veiðibjöllur og mtifar og
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>