Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
8
dómum fyrirfram. En oss vantar menntaða hæfileikamenn í allar
aðrar stöður í þjóðfjelaginu, og eigi ekki allt að fara í
handaskol-um hjá oss, verðum vjer að leggja allt kapp á að afla oss þeirra.
Vjer verðum að auka alþýðumenntun vora og einkum og sjer í
lagi gagnfræðakennsluna. Með því eina móti er von um, að vjer
eignumst nógu marga menntaða bændur, verzlunarmenn,
iðnaðar-menn og sjómenn. Og þegar sú kynslóð er vaxin upp, sem
not-ið hefur þeirrar fræðslu, þá mun oss hvorki skorta forkólfa að
framförum í atvinnuvegum vorum, nje góð þingmannsefni úr
flokki bænda og borgara. Og þ’á fyrst er kominn tími til að gera
’gagngerða breytingu á skipun alþingis og ryðja
embættismönnun-um burt af valdastöllunum í þingsalnum.
Og þó er þetta ekki einhlítt til þess að gera skipun alþingis
fullkomna. Það þarf jafnframt að gera aðra verulega breytingu.
Það þarf að breyta þingtímanum. Það þarf að breyta honum á
tvennan hátt: gera hann lengri og færa hann til.
Því hefur opt verið haldið fram í ýmsum blöðum, að al|)ingi
þyrfti að vera háð á hverju ári. Oss dettur sízt í hug að neita
því, að þetta gæti haít mikla þýðingu. En vjer álítum ekki, að
oss sje enn vaxinn svo fiskur um hrygg, að leggjandi sje út í
þann feykilega kostnað, sem slíkt hefði í för með sjer. Það
dug-ar ekki i því efni að spenna bogan .ofhátt í líking við aðrar
efn-aðri þjóðir. Vjer verðum að sníða oss stakk eptir vexti. Þörfin
A árlegu alþingi er heldur ekki svo brýn, að ekki verði vel hjá
því komizt. En aptur er brýn þörf á að lengja þingtimann. Það
sýnir sig á hverju einasta þingi, að menn verða að hroða
málun-um svo af, að slíkt er til óbætanlegs hnekkis fyrir löggjöf vora.
Það er ómögulegt að bera á móti þvi, að margar af iagasynjunum
stjórnarinnar eiga rót sína að rekja til hroðvirkni alþingis. Og
þó væri ósanngjarnt að kenna þinginu sjálfu um þetta, því vjer
ætlum að oss sje óhætt að fullyrða, að á alþingi Islendinga sje
unnið af meira kappi en á nokkru öðru löggjafarþingi í heimi.
Það er miklu fremur því að kenna, hve þingtíminn er naumur.
Það er meira en mennskum mönnum er ætlandi, að inna vel af
hendi á tveim mánuðum það verk, sem lagt er fyrir islenzka
al-þingismenn. Pað getur aldrei orðið annað en hálfkarað verk.
Það er þvi bráðnauðsynlegt að lengja þingtimann, og það má gera
án þess að kostnaðurinn við það yrði tilfinnanlegur. Það er
stór-kostlegur munur á því, hve miklu minna mundi kosta að heyja
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>