- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
21

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

21

bæna, fal hana guðs huggandi miskunn á vald, og vísaði henni á
hann, sem einka aðstoð barna hennar og hennar sjálfrar, og hjelt
svo af stað þaðan.

Helga gekk inn harmþrungin og föl; liún sat um stund i
stofunni, og flóði i tárum; svo gekk hún inn, og sagði
börnun-um, hvernig komið var; en þau skildu það varla; spurningar
‡>eirra gerðu að eins að auka á hugraun hennar.

Lik Bjarna fannst deginum eptir i sömu vikinni, og var
óskemmt; það var einnig flutt heim á prestssetrið.

Að hálfri annari viku liðinni var ákveðin jarðarför.

III.

Jón hreppstjóri hafði búið fram undir 30 ár í Hamravík, og
alltaf verið gildur og góður bóndi. En hann var einn af þeim,
sem ekld safnaði í handraðann eða sparisjóðinn, heldur lagði
alltaf talsvert fje í það að bæta jörð sína, enda var hún nú orðin ein
helzta jörðin þar í grend, og bezta jörðin á ströndinni þegar hann
fjell frá. Þó hafði eignarstofn hans heldur gengið til þurðar á
síðari árum; áttu ýmis óhöpp hlut í því, sem ekki þýðir hjer upp
að telja.

Hann var tvíkvæntur; með fyrri konu sinni átti hann tvö
börn; sem upp komust; hið eldra var stulka, er Þuríður hjet. Var
hún gipt, er hjer var komið sögunni. Maður hennar hjet
Þor-kell, og bjó i Vjegeirsvík; var það nokkurum bæjarleiðum innar
á ströndinni. Þorkell var menntaður nokkuð, hafði verið á
Möðru-vallaskólanum, og þótt efnilegur maður; hann var dugnaðarmaður,
og allvel efnum búinn, og í mesta uppgangi sem kallað er. En
orð fór af því, að jafnan tæki hann tvo peninga fyrir einn i
við-skiptum sinum við aðra, þar sem hann sá sjer fært að reyna að
koma því við.

Bjarni, sá er drukknaði með föður sinum, var ið yngra.

Fyrri kona Jóns hafði heitið Hólmfriður; hún var þá dáin
fyrir tíu árum. Ari síðar hafði hann kvongazt að nýju, og gengið
að eiga Helgu, þá er áður er getið.

Hún var ættuð þar af ströndinni; hún var af fátækum
kom-in, en vel látin stulka og efnileg. Hafði Jón því gengizt fremur
fyrir kvennkostum en efnum, er hann fjekk hennar.

Bróður einn hafði Hólmfríður átt, er Björn hjet; hatði hann

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0031.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free