- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
35

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.



35

Um leið og hann gekk hjá Porkeli, hálfglotti hann út á
vinstri vangann og hvtslaði: »Stóð jeg mig ekki vel?«

»Jú,« hvíslaði Þorkell, og ljet hann ganga hjá.

Þorsteinn settist hjá Halldóri, og sagði lágt um leið:

»Nú er eg búinn — og stattu þig nú, bölvaður heigullinn!«

Halldór hafði eins og staðið á öndinni á meðan Þorsteinn var
prófaður; það var eins og hann sæti á glóandi kolum, eða jþyldi
ekki við fyrir flóm. En — fyrst Þorsteinn slapp svona vel —
»það er nú um að gera fyrir niig að sleppa líka.«

Halldór var kallaður upp.

Hann stóð upp, gekk að stólnum og settist.

Hann var lágur maður vexti, lotinn í herðum, og gildastur
um miðjuna. Hann var ekki ósvipaður steinolíutunnu í
vextin-um. Hann var rauðleitur í andliti og bústinn, með moldgult hár
og skegg, fremur lýjulegt og var það ævinnlega úfið.
Augnaráð-ið var ódjarflegt, eins og augnalokin væri ofþung til þess, að hann
gæti horft beint framan í mann. Neðrivörin var dökk af húð aí
tóbakslegi, sem þar hafði þornað og var holdgróin. I skegginu
sat skorpa af óhreinindum í hörundinu.

Sýslumaður fór nú að spyrja Halldór; sá var munur á
fram-komu hans og Þorsteins, að hann svaraði sem fæsturn orðum
hann gat, en skýrt og glöggt. í öllu bar honum saman við
Þor-stein, enda vóru spurningarnar líkar. En þó að sýslumaður spyrði
hann einhvers annars, er þetta mál snerti, varaðist hann að segja
neitt það, er gæti komið í bága við það, sem Þorsteinn haföi sagt.

Eins var með spurningar prests; hann svaraði þeim svo, eins
og hann væri að snúa prest af laginu. Það þurfti enginn að frýja
. honum greindar, honum Halldóri, þegar hann nennti að taka á
því. Hann var þá viss með að sjá um sig.

Hann hafði staðið sig; það var ekkert meira um það að tala;
honum var leyft að fara; hann gekk til Þorsteins, og sletti sjer
niður á bekkinn aptur.

Presturinn og fylgdarmenn hans gátu ekkert meira.

Svo var ekki annað eptir en låta þá bændurna staðfesta sögu
sína með eiði. Pegar það væri búið, þá væri ekki framar um neitt
að tala. Jón hafði þá drukknað á undan syni sinum, og Bjarni
átti að taka arf eptir hann.

Það var þegar búizt við því, að låta þá vinna eiðinn.

3*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0045.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free