- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
42

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

F

42

eptir »Stürmer und Dränger«, t. d. fyrstu leikrit Klingers, Götz eptir
Goethe o. fl. Af öðruni höfundum höfðu Plútark og Rousseau mest
áhrif á hann. Varð hann að stelast til að lesa áðurnefnd skáldverk, þvi
eptir boði hertogans máttu nemendur viö skólann ekki lesa annað í
þeirri grein en úrvalsrit eptir »klassiska« frakkneska höfunda. Tók hann
nú bæði að reyna sig á að yrkja kvæði og setja saman leikrit; samdi
hann tvo sjónleiki og las upp kafla úr þeim fyrir námsbræðrum sínum,
en þeim þótti mikið til koma gáfu hans; seinna brendi hann þær
frum-smiðar sínar. En á árunum 1777-—78 tók hann að semja nýtt leikrit,
sem meira var i spunnið; það hjet »Die Räuber« (ræningjarnir), og gerðu
vinir hans sjer miklar vonir um þann leik. Vildi Schiller nú fyrir
hvern mun fá enda á háskólavist sinni, til þess að geta gefiö sig betur
viö skáldskapnum, en prófritgjörð hans, er hann afhenti 1779, þótti
heldur gifurlega orðuð, og ákvað hertoginn því, að Schiller skyldi vera
eitt ár við háskólann enn, svo mesti ofsinn gæti fariö af honum. Þetta
sama ár komu þeir Karl August hertogi af Weimar og Goethe til
Stutt-gart og skoðuðu þeir Karls-háskólann og voru viöstaddir, er nemendum
voru afhent verðlaun; var Schiller einn af þeim, er þau fengu, og sá
hann þá Goethe i fyrsta sinn. 1780 lauk Schiller af háskólanámi sinu
og var skipaður læknir viö liðssveit eina (»regiments«-læknir). Árið
eptir gaf hann út á sjálfs sins kostnað »Die Räuber«, og ljet ritið hafa
að einkunnarorði: »/« tyrannos«. Er sá sjónleikur stýlaður gegn allri
harðstjórnar áþján bæði i fjelagslegum og andlegum efnum, hræsni
aldar-innar og tizku tildri, og er að visu fullur af ólgandi ofsa og hefir ýmsa
galla, en hinsvegar er hann svo fjörugur og gangmikill og gegnum hann
allan streymir svo brennandi skáldleg andagipt, að þegar er auðfundið,
að hann er runninn úr sál og hjarta mikils skálds og göfugs, enda fannst
mönnum svo mikið til um hann, er hann kom á prent, aö ekkert
skáld-rit haföi hrifiö menn eins, siðan Goethe gaf út Götz og Werther. En
hertoganum, sem hafði harðstjórnarlegar skoðanir, líkaöi sjónleikur þessi
hiö versta, og reiddist Schiller cins og hann hefði gert sig sekan í
ein-hverju ódæði. Voru »Die Räuber« leiknir í Mannheim (í Baden) 1782
meö nokkrum breytingum og var gerður að þeim ákaflega mikill
róm-ur. Þetta ár gaf Schiller einnig út helztu æskukvæöi sin, sem að vísu
bera vott um mikla andagipt og frumleik, en eru helzt til geysingsleg
og ofviða, og þessvegna áfátt i smekklegu og formlegu tilliti. Pau voru
útgos af hinu umbrotalega og byltingalega lifi, sem ólgaði i hug hans
og hjarta, og tókst honum ekki i fyrstunni aö koma því i samræmilega
fagran skáldlegan búning.

En nú fór ekki að horfast vel á fyrir Schiller og bar tvennt til
þess; fyrst hafði hann fariö til Mannheim i óleyfi og verið við, þegar
»Die Räuber« voru leiknir, og i annan stað höföu komiö menn frá
Graubünden á Svisslandi til hertogans með kæru á hendur Schiller ut
af oröatiltæki einu i »Die Räuber«, sem haföi styggt menn þar i landi.
Petta geröi það aö verkum, aö hertoginn bannaöi honum harölega aö
rita »kómedíur« framvegis eða nokkuö af þvi tagi. Schiller sendi þá
bónarbrjef til hertogans um aö taka aptur banniö, en þess var enginn
kostur, og var honum stranglega bannaö aö skrifa landherranum optar
til. Þessi meðferð gramdist Schiller, og af því að honum þótti ills von

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0052.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free