- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
48

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

58

inn rígur átti sjer þar stað, heldur var miklu fremur hvorum annt um
annars sæmd; eins og þessir Díoskúrar andans störfuðu saman í
ein-ingu, eins munu þeir framvegis lifa samtengdir i áhrifum sínum og
endurminningunni og tvistjörnu-merki þeirra jafnan ljóma hátt yfir djúpi
tímans og bera skæra birtu yfir öldum og óbornum.

Hringsjá.

(Hrynhenda send Valdimari Briem u. nóv. 1895.)

Valdi Hamar vizku og snildar!
Vertu, bróðir, kvaddur í óði;
Gæðavetur úr glöðu heiði,
Guðleg jól og nýjárs sólu!
Dægur hvert, þó sjöfalt syrti,
Sje þjer bjart og ljett í hjarta;
Hellist sjór af glóanda gulli,
Greppur, enn yfir þína Hreppa!-—

Tigu sex hef eg fyllt á flugi

Fljótra ára lífs á bárum;

Ferðin lá yfir frera harða,

Furðugljúfur og margar urðir.

Full af sól og fegurð allri

Fjöllin sýnast af Bernskuvöllum,

En — hvar hættir — hjálpi’ oss drottinn! —

(Hrópað er síðan) ljóta hlíðin? —

Hvorki skal þó kvarta um hörku
Heims í raun og blása i kaunin,
Nje mitt gæfugengi lofa,
Get eg það fáir stórum meti.
Hitt er vert að herma í frjettum,
Hvað eg merkast sjái þaðan,
Sem eg stend á sjónartindi,
Sextíu ára, þulurinn hári.

Sje eg fyrst, í sama fjarska
Synda ódauðleikans myndir •—

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0058.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free