- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
91

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

7i

voru fleirum en honum litt leysanlegir. Hann var eins og fugl
sem svifur i loptinu; það var ekki hægt að fullyrða, hvort heldur
hann hjeldi áfram að beina fluginu, eða hann örmagnaðist og
skellti sjer niður, beint niður, rjett i miðjan »hreppskassann.«
Tobias hjelt alltaf huga sveitunga sinna glóðheitum og reikandi
um það, hvort heldur þeir mundu mega taka úr þessum mjóa
skorpna hreppssjóÖ til að hjálpa honum, eða hann skrykkti af án
þess. I hvert skipti sem Tobiasi fæddist barn andvarpaði og stundi
öll sveitin, ekki af neinni sjerlegri viðkvæmni eða mannást — sem
ekki var heldur neitt tiltökumál — heldur af einlægri umhyggju
og aðgæzlu. Hvert einasta barn, sem bættist við, jók gremjuna
og viðkvæmnina. Það var allt af sama kveljandi ráðgátan um,
hvort hann Tobias á Skeri kæmist sjálfbjarga af eða ekki.

Það var aldrei nema hársbreidd á milli hans og
sveitarsjóðs-ins; hafði raunar æfinlega verið svo. — En hvað myrkar sem
spárnar höfðu verið frá því fyrsta, þá skyldi þessi hársbreidd þó
jafnt og stöðugt hvorn frá öðrum. Gagnstæðlegar tilfinningar
lögðu hina örveiku brú yfir hyldýpið, sem skalf og titraði við
hverja minnstu hreyfingu, hjekk likt og mauravefur yfir kolsvartri
klettagjá, sem blaktir til og frá i kvöldnepjunni. Bara ef
hrepp-stjórinn snerti við honum með minnsta fingri eða tæki eina
fjöð-ur af honum, þá var hann líka á sama vetfangi kominn á
höfuð-ið í »hreppskassann« með konuna og alla krakkana þeirra, átta
talsins. Það var ekki annað en taka úr öðrum lófanum og leggja
i hinn.

Tobias kom eins óboðinn i hinn blásnauða Kefjörð og dagur
drottins, eða sviplegur vígabrandur.

Upphaf allrar ógæfunnar var það, þegar Lýsingur hans Hans á
Harastöðum fótbrotnaði í urðinni. Enginn heimilismaður vildi
birkja klárinn og enginn utanheimilismaður heldur, og þó var
sjálf-sagt að hirða húðina; það var ekkert annað en stundarhapp, að
Tobias þá gaf sig fram.

Hann kom labbandi deginum áður þar i húsmannskotið, og
enginn vissi til, að hann hefði annað meðferðis en stóran
skinn-feld, sem hann bar á bakinu, og ofurlitla skreppu i annari
hend-inni með einhverjum litilförlegum smiðatólum i; hann átti hvorki

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0111.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free