- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
120

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

120

vid sáum ej Land fyrr enn um nónbil. Um qvöldid kl. 8 vorum
vid ii til 13 mílur fyri vestann Lindisnes sem er sydsta nes edur
endi af Norvegi.

15. Gódur og hægur Kuldi á Nordann. Purt og besta vedur. Um
morguninn sáum vid landid mikid glöggt, því vid sigldum nærri
því. Er á þeim landskanti nóg af fjöllum, enn þau eru ekki há.
Priú hús sáum vid glöggt; þau voru þakinn med raudum þaksteini.
Um hádegi sigldum vid fyri Lindisnes, og sáum pá glöggt hús á
Landi. Lóts kom til ockar um Lesturinn, til ad vita hvört vid ecki
vildum koma i Land. Einn Dúkur 1 segli hans var raudur, og er
þad lódsbátamerki i Norvegi. Þennann dag sigldum vid inn med
miklu Eyabelti íyri framann Landid. Úr þvi vid komum upp undir
Norveg tókum vid ad sjá fleiri skip. Þennann dag sáum vid 2.
Eptir midmunda giördi Logn. Sneri vindurinn sier smám saman til
útsudurs, og aptur um nóttina til vesturs.

16. Vestann- og sidann Nordann-vindur. Um morguninn snemma
sá-um vid litla Galease lángt á eptir, enn um qvöldid var hún gott
Kippkorn á undann ockur. Kl. 8 E. M. vorum vid eptir
Reikn-ingnum 6 a 8 mílur fyri Nordvestann Jyllands Skaga, fórum þó
ad stika djúpid og fundum einasta 15 fadma djúp. Urdu
skipverj-ar þá skjelkadir, einkum Timburmadurinn, og tóku ad halda meir
nordur á, þvi vid Skagann er hættulegasta skipbrots Pláts vegna
Sandrifa, enn bálfhræddir voru menn um ad vitaverdir Kóngs á
Skaganum hefdu gleymt ad kinda bálid edur vitann á Fýrturninum —
hvörjir vitar kyndast á hvörri nóttu sjófarendum til vidvöranar.
Slikir Fyrturnar eru vida i Kattegattet, edur vid þann sjó sem nær
frá Jotlandsskaga til Eyrarsunds yfir 100 til 200 álna frá sjáfarmáli.
Einn slikur er ogsvo vid Lídandisnes. — Enn svo eg komi aptur til
Skipverja vorra, vorum vid alla nóttina ad stika djúpid þvi myrkt var.

17. Logn um morguninn til um hádegisbil, þá litid hvessti á vestann.
Nú sigldum vid fyri bi skagann og þad svo nærri ad vid glöggt
sáum stadinn sjerdeilis þá tvo vitaturna og kirkiuna. Kl. 5 E. M.
gátu Skipverjar sjed úr reidanum land til austurs og Stadinn
Marstrand í Sviaríki, þar straumurinn hafdi svikid þá (sem ecki var
svo fjarka vandskillegt). Um morguninn sáum vid Brikkskip,
sitj-andi fast á Jutskarifi, sem gengur út af Skagatánni, og hefur
eitt-hvad af þvi þrennu tilkomid ad i° vitinn eptir tilgátu manna ecki
hefdi verid qveiktur um nóttina, 2, Skipherra og Stýrimadur
vit-lausir (»ligesom hos os«1), edr 3, þeir hafa setst um kyrrt
med vilja. — Um Kvöldid Kl. 8x/2 sáum vid 2 Fyra edur vita á
Nidingnum, sem er Klettur eda litill hólmi spottakom frá Landi i
Svíaríki. — Ecki vardi sá gódi vindur lengur enn til kl. 4 um
nótt-ina, þá hann umbreyttist i Utsynnings mótvind. Um qvöldid þá
vid lögdum ockur til svefns, hjeldum vid fyri víst, ad næsta qvöld
um sama mund mundum vid komnir i Kaupmannahöfn, þvi þángad
áttum vid ecki eptir nema rúmar 20 milur, enn þad fór ödruvisi,
því nú tókum vid ad krydsa og drífa til baka.

1 »Eins og hjá oss« — máltæki úr leikriti Holbergs ».Ulysses von Ithacia« (rjet
ara »ligesaa hos os«).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0140.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free