Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
140
mæðin þrautir vinnur allar, eins og málshátturinn segir, og líður ebki
á löngu, áður þeir eru útfarnir í þeirri list að framreiða mat, sjóöa egg
og hita á katlinum. Um matmálsbilið er þaö alltítt, ekki sízt meðal
Islendinga, aö einhverjir sjeu á flakki til og frá um Garö, fitji upp á
trýnið og nasi við dyrnar hjá kunningjunum, til að grennslast eptir,
hvað á borðam sje, og svo framarlega sem þeir kenna ilm af einhverju
sælgæti, þá eru þeir ekki lengi á sjer að stinga upp á að slá saman
reit-unum og efla til eins betri morgunverðar eða kvöldmáltíðar. Einkum
kennir þessa, þegar menn fá mat heiman af Fróni. Sá, sem matinn
fær, er kviaður inni og umsetinn eins og viggirtur kastali á örgustu
óaldatimum, og láti hann nokkurn bug á sjer vinna, þá fá
matarbirgð-irnar aö kenna á því. Ja, drottinn minn, þvílíkur handagangur í
öskj-unni! Sviðakjammarnir, hangiketsrifin og saltketshnúturnar hverfa á
svip-stundu eins og ofan í botnlausa gjá, og svitinn bogar af mönnum við
að róta upp kæfuflygsunum og smjerkökkunum, en á smjattinu má
heyra, hversu vel frónsku krásirnar smakka. Þótt nu húsráöanda eða
húsráðendum stundum renni til rifja að sjá á bak þeim, þá vita þeir
aptur á móti, að borðgestimir ekki telja eptir sjer að låta eitthvert
sælgæti koma í staðinn, er siðar meir kann að falla þeim í skaut. Pað
er gott að gera vel og hitta sjálfan sig fyrir.
Garðbúar hafa sjer til aðstoðar nokkra þjónustusamlega anda, sem
nefnast Garðkarlar, og koma þeir að góöu haldi, þótt ekki jafnist þeir
við andann, sem bjó í lampanum hans Aladdins, hvorki að dugnaði nje
hraðvirkni. Peir skola mataráhöld Garðbúa, kaupa inn vistir, bursta skó
og fleira þess háttar. En meður þvi að allir eru svo ósanngjarnir i
þessum heimi að vilja hafa eitthvað fyrir snúð sinn, og þar á meðal
Garðkarlarnir, þá geldur hver Garðbúi karli sinum 4 krónur á mánuði
í ómakslaun. A Garði má heita heldur hart um kvennfólk. Pó koma
þar daglega nokkrar kvennsniptir eða kerlingarrolur til að sópa, þvo og
búa um, en þær eru flestar meö því markinu brenndar, að engum
mennskum manni getur dottið i hug að skipa þeim í flokk með
kvenn-fólkinu, svo ófjetislegar eru þær, og er það margra manna skoðun, að
þær fremur heyri til á einhverju forngripasafni heldur en á skeiðvelli
lífsins. Prófasturinn þorir ekki fyrir sitt lif að sleppa ýngismeyjum inn
á Garð til að þjóna Garðbúum til borðs og sængur, og get jeg ekki
láö honum það manninum. Petta er ungt og leikur sjer.
Ef herbergin á Garði hefðu mál og rænu, þá kynnu pau frá mörgu
að segja og misjöfnu. Opt hefur glumið i þeim af kátinu, söng og
háreysti kvöld eptir kvöld, og hefur stundum i alllangan tima mátt telja
þau orð, sem þar hafa verið lesin. Hins vegar hafa þau og opt hlúð
að einbeittu og alvarlegu námi, hafa girt verndandi um eldheitan anda
og brennandi fróðleiksfýsn og variö margt dýrmætt frækorn á
þroskun-arstiginu fyrir hretum og stormum. Pau eru máske sum heldur tómleg
og fátækleg, veggirnir berir, legubekkurinn slitinn og sligaöur og
stól-arnir trosnaðir og bágir til fótanna, en þegar búið er að skjóta lokunum
fyrir gluggana, tendra ljósiö og glatt logar i ofninum, — ekki þarf að
spara eldiviðinn, háskólasjóðurinn borgar brúsann —, og úti fyrir
dynj-andi hrið og illviðri, þá leiða þau ósjálfrátt hugann að hlýjum
klaustur-klefa i einveru Iangt frá öllum mannabyggðum. Þrátt fyrir allt og allt
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>