- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
142

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

þeir fæti sinnm á Garð, en nauðugir-viljugir sögðn þeir skiliö við hann,
þegar tók að líða að prófinu og lifið birti þeim kröfur sínar meö fáurn
orðum í fullri meiningu. Ekki iivað sízt hafa íslenzkir námsmenn i
út-legöinni fjarri heimkynninu og ættingjunum tekiö tryggð viö hanu og
skoðað hann sem athvarf sitt og skjól á þessu fjalllausa fróni. Þeir hafa
því fremur gert það, sem fæstir þeirra hafa að ráði haft nokkur mök
við Dani og kenna þvi öðrum fremur einstæðingsskaparins. Utangarðs
eiga þeir sjer að jafnaði ekki annað athvarf en »íslendingafjelag« og
»Fjelag ishnzkra síúdenta i Kaupmannahöfn«, er koma saman á mánaðar
fresti. Paö er gamall siður á Garði, að þeir, er eptir sitja af Garðbúum,
semja nokkurs konar grafskript yfir þá, er út flytja. Petta hefur við
gengizt í mörg herrans ár, og eru grafskriptirnar letraðar á bækur, sem
Garðbúar yarðveita eins og sjáaldur auga síns, komandi kynslóöum til
eptirdæmis og viðvörunar. Er þar stundum allófyrirleitlega að orði
komizt og engin dul dregin á það, er athugavert liefur þótt í dagfari
manna. Jeg er hálfsmeykur um, að ef sumir gafnlir Garðbúar, sem
nú eru orðnir gráir fyrir hærum og skipa ýms tignarsæti i
jþjóðfjelag-inu, rækju augun í grafskriptina sina, þá mundu þeir hnykla brýrnar og
låta sjer fátt um finnast.

Pótt margir sjeu, eru þó Garðbúar ekki nema lítill hluti allra
stú-denta í Kaupmannahöfn. Pað úir og grúir af þeim um allan bæinn.
Þeir, sem ekki finna athvarf á Garði, eiga annars staðar höfði sínu að
að halla. Par eru 3 samkunduhús (Collegia), er veita stúdentum ókeypis
húsnæði, og eru pau reist af 3 privatmönnum fyrir mörgum herrans
árum síðan. Envi fremur eru þar 2 fjelög, Stúdmtafjdagiö
(Studenter-foreningen) og Stúdentasamkundan (Studentersamfundet), sem breiða opinn
faðminn á móti öllum þeim, er bera stúdentsnafn. Stúdentafjelagið er
vel efnum búiö og á reisulega byggingu í námunda við »Kóngsins nýja
torg«, miðdepil bæjarins. Meðlimirnir geta fengið þar ódýran
miðdegis-verð og eiga auk þess aðgang að bókasafni, blöðum, fyrirlestrum og
öðrum skemmtunum og njóta þar ýmsra hlunninda. Stúdentafjelagið
hefur jafnast heldur þótt bera keim af apturhaldsstefnunni, bæöi aö þvi
er snertir almenn mál og andlegar hreyfingar, og sú verður gjarnast
raunin á, að flestir embættismannasynir leita þangað. Kvennstúdentar
era útilokaðir frá að gerast meðlimir þess fjelags. Stúdentasamkundan
gengur aptur á móti í gagnstæða stefnu. Pað er andi Georgs Brandesar
og framsóknarmanna, sem hvilir þar yfir vötnunum. Þangað leita þeir,
er frjálslyndastir eru og framgjarnastir medal stúdenta. Par er stundum
djarfmannlega til orða tekið gagnvart stjórninni og hennar sinnum, og
ómjúk orð eru þar látin dynja yfir allt það i bókmenntanna lieimi, er
hinum ungu oflátungum þykir crðið gamalt og úrelt. En jafnóðum og
þeir finna að berserksgangurinn i þjónustu hinna nýju
umturunnarhug-mynda tekur að renna af þeim, taka þeir sjer neðan í þvi til að sækja
í sig kjark, til að geysast fram á ný og skekja burtstöngina í hinu
and-lega turnímenti. Að Stúdentasamkundunni eiga kvennstúdentar
aðgangs-rjett til jafns við karlmenn. Pes’sar læröu drósir kynoka sjer ekki við,
ef svo ber undir, að drekka tvímennnig viö fjelaga sína meðal
karl-mannanna eða kveykja sjer i vindilstúf. Stúdentasamkundan nýtur mun
meiri hylli hjá bæjarbuum heldur en Stúdentafjelagið, og kemur það

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0162.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free