Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
144
fyrri hlutanum og veröa aldrei aö manni. Aörir aptur A móti kasta
sjer i byrjun ragmennskulaust út i straum lifsins og taka sjer hressandi
baö, en festa þó augun stöðugt á takmarki námsins og menntunarinnar.
Peim skýtur svo von bráðar upp aptur eptir kafiö, auöugri aö reynslu
og þekkingu en áður, og aö ýmsu leyti færari til aö takast á viö allar
þær raunir og tálmanir, er kunna aö mæta þeitn á lifsleiöinni.
Jón Jonsson.
Landsbankinn og landfógetinn.
Eins og flestum mun kunnugt, er landsbankinn islenzki
stofn-aður með lögum 18/9 ’85, og verður þannig í september í haust
12 ára.
í þessi rúm 11 ár, sem landsbankinn hefur staðið, hefur hann
tekið mjög miklum framförum, bæði hvað efnahag og álit snertir,
en þó hefur honum mest farið fram, síðan herra Tryggvi
Gunn-arsson tók við stjórn hans. Sjerstaklega megum vjer vera honum
þakklátir fyrir, að hann hefur komið landsbankanum í samband
við erlenda banka, því þótt þessu sambandi sje ekki svo heppilega
fyrir komið, sem æskilegt væri, þá er þó með því stigið spor í
áttina, til þess að kotna bankanum í náið og ábatasamt samband
við erlenda banka. Ymislegt fleira mætti telja bankanum og
banka-stjórninni til gildis, en því miður stendur samt landsbankinn
sam-svarandi bönkum erlendis töluvert að baki.
Aðalókosturinn við ísl. laudsbankann er, hve óhægt menn út
um landið eiga með að nota hann. Þessi ókostur, er ákaflega
til-finnanlegur, og þessu verður varla kippt í liðinn með öðru móti,
en að koma á fót aukabönkum út um landið, er geti gegnt öllum
sömu störfum þar, sem höfuðbankinn i Reykjavik, en standi þó
undir umsjón og stjórn hans. Til þess að aukabankar geti staðizt
út um landið, verða þeir að hafa nóg að gjöra; en hætt er við,
að þeir mundu, að minsta kosti fyrstu árin, ekki borga sig, nema
með því móti, að hlynnt væri að stofnum þeirra af hálfu
land-stjórnarinnar. Þess gjörist alls engin þörf, að landstjórnin styrki
slikt fyrirtæki með beinum fjárframlögum, heldur má gjöra það
einungis með nýju fyrirkomulagi, er sje þannig varið, að
land-sjóður bíði ekkert tjón af, heldur hafi miklu fremur ábata.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>