- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
158

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

58

landa með villimannaflokkum þeim, sem koma meö Oðni, konungi konunganna.
Hin yngri Edda er skrifuð af Snorra Sturlusvni, og einn helzti kapítulinn í þessu
verki er Heimskringla (þessi vitleysa er þó leiðrjett í leiðrjettíngum aptan við
hókina, en sem fæstir lesendur munu taka eptir), sem auk sögulegs kafla hefur
intii að halda nákvæmt tímatal allra þjóðhöfðingja í Noregi. Af sögunum eru
helztar: Njála, Eyrbyggja, Laxdæla, Egla og Grettla, en auk þeirra yfir 500 aðrar.
Hafa einkum tvær þeirra mikið sögulegt gildi, því þær skýra nákvæmlega frá
landnámi Norðmanna á Islandi. Þær eru Islendingabók og Landndma. Skýrir
hin fyrri frá viðburðum þeim, sem urðu á landnámsöldinni, en hin hefur inni
að halda nákvæma skrá yfir alla þá konunga, sem riktu á Norðurlöndum írá þvi
að þessi þjóöflokkur lagði norðurhluta Norðurálfunnar undir sig. — I pólitisku
tilliti skiptast Islendingar i tvo skarpt aðgreinda flokka: konungliða (le parti
royaliste), sem halda hollustu vi5 krónu Dana, og þjóðveldisliða (U parti
répu-blicaine), sem leitast við að vinna aptur hið forna lýðfrelsi. Á milli þessara
tveggja flokka er ákafari barátta, en maður skyldi trúa, og veitti ekki
stjórnar-skráin konungi rjett til að kjósa sjer meiri hluta í þingdeildunum, þá mundu
yfirráð Dana eiga skömmu láni að fagna. Af dómstólum er að eins einn
innan-lands: yfirdómurinn. Sýslumenn samsvara, að J>ví er dómsvald snertir, hinum
svo nefndu friðdómurum i öðrum löndum. Framkvæmdarvaldið er i höndum
landshöfðingja (sem er ákafur framfaramaður) og tveggja amtmanna, og situr
annar þeirra i Rvik, en hinn á Möðruvöllum. Þá er og fjöldi sýslumanna, sem
hver hefur tvær sýslur undir sjer. og skipa þeir lög og rjett á ákveðnum stað,
sem kallaður er þingstaöur. — Aptan til i bókinni er stutt yfirlit yfir sögu
lands-ins og má það heita nokkurn veginn viöunandi, þó sumar villur sjeu þar slæmar.
Þannig segir þar að hið forna alþingi hafi verið afnumið 1810, og
einokunar-verzlunin innleidd 1786, en aptur af numin 1854. — Siðast er stuttur kafli um
yerzlun íslands og hagsskýrslur um aðfluttar og útfluttar vörur, sem virðast vera
rjettar. Vill höf. að verzlunarsamband komist á milli Belgiu og Islands og hvetur
landa sina til að gera eitthvað i þá átt, því það mundi geta orðið til mikilla
hags-muna fyrir hvoratveggju hlutaðeigendur. Þetta er bezti kaflinn i bókinni.
Ann-ars virðist öll bókin benda á, að höf. sje meinleysismaður, sem hafi fullan vilja
á að skýra sem rjettast frá öllu, þó fáfræðin hafi valdið því, að annað hefur
orðið ofan á.

Auk þessa hefur premierlautinant Daniel Braun, sem ferðaðist á Islandi í
vrra sumar, skrifað stutta, en laglega grein um ferðalag sitt í »Illustreret Tidende«,
og er hún prýdd nokkrum snotrum myndum. En seinna mun von á bók frá
hans hendi með mesta sæg af myndum. V. G.

FORNSKÁLDIN. 1 Tímaritinu *Scottish Review« (okt. 1896) hefur W. A.
Craigie, M. A., ritað alllanga grein um kvæði (drápur, flokka og lausavisur)
nor-rænna fornskálda. Getur hann þess i bvrjun greinar sinnar, að um gildi kvæða
þessara hafi verið mjög skiptar skoðanir. Sumir (t. d. Ben. Gröndal) hafi hafið
þau til skýjanna, en aptur hafi aðrir (t. d. J. A. Blackwell) neitað þeim um alla
skáldlega fegurð og álitið þau einskis virði. Segir hann að i rauninni hafi
hvorir-tveggju nokkuð til sins máls, en hvortveggi dómurinn sje þó órjettlátur. Það
sje að vísu satt, að lítið verði úr þessum kvæðum, þegar farið sje að þýða þau
á aðrar tungur í lesmáli, þvi þá hverfi allt það, sem mest hafi einkennt hinn
fornnorræna skáldskap, og sem skáldin hafi sjálf skoðað sem aðalatriðið við
kveð-skap sinn, nefnilega hin fullkomna braglist og likingarfullar kenningar. Til þess

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0178.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free