- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
170

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

i70i

lögin og eptirlaunalögin og aukalaunalögin og bitlingaveitingar,
skáldalaun, fuglafriðun, seladráp, laxatímgun og ótal fleira
þess-háttar. Það hafði engan tíma eða peninga til að verja
til mannlífsfriðunar.

III.

Síra Konráð varð prestur í Kálfárþmgum eptir föður sinn og
þjónaði hann því brauði i fjögur ár.

Ekki fór það með leynd, að síra Konráði og konu hans
As-gerði fjellst mjög um fráfall sira Höskuldar. Var hún jafnan
eptir það meira eða minna veil á geðinu, þrátt fyrir allt, sem reynt
var við hana að læknisráði. En þó kastaði fyrst tólfunum eptir
dauða Ara frænda hennar. Tók það svo á hana, að sjá upp á
hann og kynnast holdsveikinni, að henni fór að standa
óbærileg-ur stuggur og ógn af lifinu.

Mánuði eptir lát Ara var presturinn sóttur til að gera
eitt-hvert embættisverk þar í sókninni. En um kvöldið, þegar hann
kom heim, var kona hans horfin. Var hennar þegar leitað, og
fannst hún hvergi. Degi síðar sá prestur lik konu sinnar í
Laxa-hyl, sem er skammt fyrir neðan túnið á Kálfá. Ljet hann þegar
slæða það upp, og fannst við það tækifæri einnig beinagrindin af
Unni Sigurðardóttur. — Ekki hafði þeim hjónum orðið barna
auð-ið, en þegar Asgerður drekkti sjer, var hún kona eigi einsömul.

Síra Konráð var orðinn mæddur af lifinu, þó eigi væri hann
gamall maður. Tók hann sjer mjög nærri dauða konu sinnar,
og öll Kálfár-mannslátin, því honum var fullljóst, af hverju þau
voru sprottin. Dó hann þrem mánuðum síðar en kona hans, og
þó það væri faraldsveiki, sem var aðaldauðamein hans, var það
víst, að hann hafði ekki lengur prá til lifisins. Þó hann yrði ekki
nema 29 ára að aldri, var hann ekki einungis búinn að tæma í
botn bikar gleði sinnar og lifsvona, heldur haföi hann og hlotið
að bergja hjer um bil til botns eiturlyfjabikar mannlifsins,
byrlað-an af tilfellum og þjóðinni. —

Eptir farandi brjefkaflar, sem sira Konráð skrifaði vini sinum,
skömmu fyrir andlát sitt, sýna ljóslega, að hann hefir að lokum
skilið rjett alla Kálfár-viðburðina. Þeir hljóðuðu svo:

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0196.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free