Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
172-
af börnum sinum. Hafði Sigurður því verið alinn upp á
sveitar-fje, eins og títt er á íslandi. Fljótt þóttist fólk taka eptir því, að
í honum byggi mikið og gott mannsefni. Spáðu ýmsir, að hann
mundi verða mikill maður á sinni tíð, og þótti sá spádómur
sið-ar vel rætast.
Sigurður byrjaði búskap sinn á jörðinni Iðu. Var sú jörð
talinn kotjörð og að litlu nýt. En Sigurð þraut hvorki atorku
nje iyrirhyggju, svo eptir fárra ára búskap var hann búinn að bæta
og nytja jörðina svo ýtarlega, að hún var talin einhver bezta
bú-jörðin í Langadalshreppi. Margir viðurkenndu, að þó Sigurður
heíði stærsta búið í sveitinni, þá væri það eigi af því, að sumar
aðrar stórjarðir gætu ekki borið eins mikla áhöfn eins og Iða;
en hitt væri það, að enginn gæti haft eða áit annað eins stórbú
og Sigurður bóndi.
Þrennt var það, sem auðkenndi Sigurð um fram flesta
sam-tíðarmenn hans, og hóf hann í hæsta sess almenningsálitsins.
Fyrst það, að hann var duglegri, og forsjálli en allir aðrir.
Ann-að það, að hann hjálpaði öllum, sem til hans leituðu, hvort sem
það var i stóru eða smáu. Þriðja það, að hann unni meira
ósjer-góðum íjelagsskap, en nokkru öðru.
Eptir tveggja ára búskap varð hann hreppstjóri í
Langadalshreppi og hjelt þvi embætti til dauðadags. Eptir aö
sýslunefndar-störf og hreppsnefndarsýsl varð að lögum, gegndi hann þeim
störf-um með miklum dugnaði og fyrirhyggju og forsjálli heppni alla
sina tíð. Þegar hann tók við hreppnum, var hreppurinn með
fá-tækustu hreppum landsins. En er Sigurður fjell frá, átti
hreppurinn meiri sjóð, en nokkur annar hreppur á landinu. I hans tíð
voru stofnuð fimm fjelög í hreppnum. Var hann formaður þeirra
allra, og þrifust þau mæta vel, þótt samskonar fjelög í næstu
hreppum gætu með engu móti haldizt við.
Sigurður var tvígiptur. Báðar konur hans voru sómakonur,
og mat hann þær mikils. Með seinni konu sinni átti hann eina
dóttur. Hún hjet Unnur. Móðurætt hennar var á Austurlandi.
Sigurður mátti heita rikur maður, þegar hann tjell frá. Með
samráði konu sinnar gaf hann skólasjóði hreppsins einn fjórða af
eigum þeirra, og nam sú upphæð 5000 kr.
Sigurður varð mjög harmdauði, eigi að eins innanhjeraðs,
heldur og fjarsveitis. Hann var víða kunnur og hvervetna á einn
veg. Sóknarpresturinn hjelt að góðum og gömlum sið, afarlanga
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>