- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
177

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

177-

væri vel saman, og er það ekkert undarlegt, því sizt er það efa
orpið, að hún er að ytri sjón kvennkostur mestur og beztur hjer
um slóðir, og jafnvel þó víðar væri leitað. Og ætíð hefi jeg
unn-að henni sem ykkur börnunum mínum, síðan hún kom undir
mina umsjá. En dul er í málum hennar, þó fáir viti hjer um
slóðir, og hún geti ekki sjálf aðgert. Hun er af svonefndri
»Hlið-arætt«. En holdsveiki er kynfylgja i allri þeirri ætt, og megnari
en i nokkuri annari ætt landsins. Hefir fjöldi fólks i ætt þessari
dáið úr þessum hryllilega sjúkdómi, og margt á unga aldri. En
fáum hjer um slóðir er kunnugt um ætt hennar. Skulum við
þvi leynt með fara, svo ekki standi henni tjón af fyrir vorar sak-

ir, þó illt sje til að vita en verði að dylja.«–

Lengra heyrði Unnur ekki samtal þeirra feðganna. A byrjun
þess hlustaði hún hálfbrosleit og kýmin. Hún vissi sem fleiri að
sira Höskuldur var æfinlega dálítið grobbinn af ætt sinni, þegar
hann var kenndur. Hún hafði heyrt að ættin hennar væri rjett
eins og flestar ættir gjörast, og það fannst henni mjög sennilegt.
Þegar hann fór að tala um kvonmál sonar sins, hljóp ofurlítill
roði i kinnarnar á henni; hjartað sló svolitið tíðara. Það var
lit-ið vafamál, hvort það mundi stefna. Hun vissi, að Konráð hafði
margopt ætlað að segja sjer, að það væri aðeins ein persóna,
sem væri svo verðdýr, að sjer Jþætti tilvinnandi að lifa þessu auma
og auðvirðilega mannlífi. Og það væri einmitt hún. Engin
önn-ur en hún! En hún hafði æfinlega getað hamlað þvi, að þetta
kæmist í samhengi út fyrir varir hans. Henni fannst sjer þykja
vænna um hann, en nokkurn annan. En að hann væri
samboð-inn sjer, var það spursmál, sem hun gåt aldrei sæzt á. Hann var
drykkfeldur i meira lagi, og staðfestu litill i öllu ráðlagi. Hún
vildi vera viss um, að vera tilbeðin af öllu því sanna góða og
göfgasta, sem til er í manns hjartanu, áður en hún fórnaði sjálfri
sjer og framtið sinni á altari hjónabandsins. Hún efaði að
Kon-ráð ætti þessa eiginlegleika til, — og sizt til frambúðar. I fyrstu
fiaug um hug hennar, að hún skyldi lofa þeim að vera vonbiðlum,
feðgunum. En sjóðandi svall blóðið i æðum hennar, þegar
prest-urinn spurði: »Hver er sú kona, sem þú kýs þjer fremsta af
öllumr« Og Konráð gaf þau svör, að hann hefði ekkert um það
hugsað.— Hann laug! Visvitandi og af ásettu ráði! Hann
lítils-virti hana og einlægni ástríks föður. Hann var ódrengur!—
Hug-laust úrþvætti! — Hún stappaði fætinum i gólfið. Hann hafði

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0203.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free